Handbolti

Reyna að fylla í skarð Bjarka

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
FH-ingur Benedikt Reynir er á 23. aldursári.
FH-ingur Benedikt Reynir er á 23. aldursári. Mynd/Afturelding.is
Benedikt Reynir Kristinson á í viðræðum við sína gömlu félaga í FH um endurkomu í Hafnarfjörðinn. Fyrir þessu hefur Fréttablaðið öruggar heimildir.

Hornamaðurinn, sem er uppalinn hjá FH og varð Íslandsmeistari með liðinu vorið 2011, hefur síðan leikið með Gróttu og Aftureldingu. Hann samdi við Mosfellinga til tveggja ára fyrir síðustu leiktíð.

FH-ingar eru í leit að rétthentum hornamanni eftir að Bjarki Már Elísson hélt utan í atvinnumennsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×