Hefði verið gaman að fá að dæma á Ólympíuleikum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. maí 2013 06:00 Hlynur ræðir hér við Stellu Sigurðardóttur, leikmann Fram. Fréttablaðið/Daníel
Hlynur Leifsson og Anton Gylfi Pálsson munu dæma undanúrslitaleik Barcelona og Kielce í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Leikurinn fer fram í Köln um mánaðamótin en þar fer fram úrslitahelgin í Meistaradeildinni ár hvert. „Þetta verður hörkuleikur og það er mikill heiður að fá þetta verkefni,“ segir Hlynur, sem tilkynnti á dögunum að hann myndi hætta í dómgæslu í lok tímabilsins. Líklega verður þetta hans næstsíðasti leikur því hann mun væntanlega dæma landsleik í næsta mánuði. Hlynur segist hafa verið hvattur til að endurskoða ákvörðun sína um að hætta. Hann stendur hins vegar við sitt. „Ég var búinn að velta þessu lengi fyrir mér. Það er einfaldlega of mikið að vera í burtu í allt að tvo mánuði á ári þegar maður er með fjölskyldu og í vinnu,“ segir Hlynur en hann hefði getað dæmt í sjö ár í viðbót. „Það hefði verið gaman að dæma á Ólympíuleikum en það er fleira í lífinu en handbolti. Nú fær Anton tíma til að byggja sig upp með nýjum félaga og vonandi komast þeir á leikana í Ríó eftir þrjú ár.“ Kiel og Hamburg eigast við í hinni undanúrslitaviðureigninni.
Handbolti Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Sjá meira