Frambjóðendur Bjartrar framtíðar, þær Heiða Kristín Helgadóttir og Sigrún Gunnarsdóttir, heimsóttu íbúana um hádegisbil í gær.
Svava gefur ekki mikið fyrir þá tegund kosningabaráttu þegar frambjóðendur koma inn á hjúkrunarheimilið til að dreifa bæklingum.
„Það er hundleiðinlegt þegar þessir flokkar koma og skýra frá sínum stefnumálum, svo ég svari fyrir mig. Mér er alveg hjartanlega sama um þá,“ segir hún. „Svona stutt heimsókn mun heldur aldrei breyta afstöðu minni.“
Þær Sigríður Sjöfn Einarsdóttir og Fjóla Bjarnadóttir, íbúar á Eir, könnuðust ekki við Bjarta framtíð sem stjórnmálaflokk en þekktu andlit Róberts Marshall, Óttars Proppé og Jóns Gnarr sem prýddu forsíðu bæklingsins sem Heiða og Sigrún dreifðu um deildina.
Sigríður og Fjóla ætla báðar að kjósa á föstudag utan kjörfundar og líst ágætlega á fólkið á lista flokksins. „En maður á auðvitað eftir að kynna sér þetta betur,“ segja þær.

Sigríður Björnsdóttir Bjarklind, 87 ára, og Kristbjörg Bjarnadóttir, 93 ára, komu af fjöllum þegar blaðakona skýrði frá því að stjórnmálaflokkarnir í komandi kosningum væru fimmtán talsins.
„Er það virkilega? Heyrðu vinan, við verðum að fara að herða okkur,“ segir Sigríður og klappar saman lófum til vinkonu sinnar. „Já, heldur betur,“ tekur Kristbjörg undir.
„Svo heldur maður að það muni engu um þetta eina atkvæði manns, en það gæti nú verið misskilningur þegar svona margir eru í framboði.“
Þær gefa ekki mikið fyrir heimsóknir stjórnmálaflokka á Eir. „Það hefur engin áhrif á mína afstöðu, en er reglulega áhugavert engu að síður. Þetta verða spennandi kosningar,“ segir Kristbjörg.
„Við ætlum að kjósa, það er sóun að sleppa því. Það er svo margt sem þarf að laga, sama hver er við völd. En það er vissulega mikið af góðu fólki í framboði hjá flokkunum og maður gæti alveg hugsað sér að kjósa fleiri en einn.“
Kosið verður utan kjörfundar á Eir á föstudag.
Yfirdráttur frá Gumma og frjáls framlög borga kosningabaráttuna
Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, skipar annað sætið í Reykjavík norður. Hún segir það skipta flokkinn máli að kynna sig sem víðast, sérstaklega þar sem hann er að bjóða fram í fyrsta sinn.
„Svo höfum við ekki ráð á sömu auglýsingum og margir aðrir. Við erum að reka okkar kosningabaráttu á frjálsum framlögum og yfirdrætti sem Gummi tók og verðum því að fara út og dreifa bæklingunum handvirkt. Svo er ótrúlega gaman að eiga samtal við alls konar fólk,“ segir Heiða. Sigrún Gunnarsdóttir skipar fjórða sætið í Reykjavík suður. Hún tekur undir orð Heiðu Kristínar og undirstrikar að aldraðir séu mjög mikilvægur hópur kjósenda.
„Þótt við leggjum áherslu á framtíðina þá er framtíð okkar allra mismunandi löng. Þetta fólk á börn og barnabörn og er án efa umhugað um bjarta framtíð,“ segir hún.