Hannar á dömurnar Sara McMahon skrifar 30. janúar 2013 10:00 Guðmundur Jörundsson hefur getið sér gott orð fyrir herralínur sínar en frumsýnir sína fyrstu dömulínu á RFF. Fréttablaðið/Valli
Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hefur fært út kvíarnar og sýnir fyrstu dömulínu sína á Reykjavík Fashion Festival í mars. Guðmundur hefur áður getið sér gott orð fyrir herralínur sínar en hann hannar bæði undir eigin nafni og fyrir Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Samkvæmt Guðmundi verður dömulínan gæjaleg og mikið lagt upp úr sníðagerðinni. "Við erum nýbyrjuð í sniða- og munsturgerð. Litapallettan verður einföld og sniðin gæjaleg. Hingað til hef ég einbeitt mér alfarið að herrafatnaði og þetta er því svolítið nýtt fyrir mér, en ég er mjög spenntur fyrir þessu," segir Guðmundur sem á merkið JÖR by Guðmundur Jörundsson ásamt Gunnari Erni Petersen. Guðmundur mun áfram hanna línur fyrir Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar en segir þær línur ekki koma jafn ört út og hans eigin. "Vörurnar þeirra eru mjög klassískar og koma ekki út á hverri önn eins og mínar. Það er vissulega mikið í gangi þessa stundina, en mér finnst gott að geta kúplað mig úr herralínunum með dömulínunni og öfugt," útskýrir Guðmundur sem stefnir á að opna eigin verslun við Laugaveg 89 sömu helgi og RFF stendur yfir. "Þetta er rúmgott og fínt húsnæði og er staðsett við hliðina á Atmo. Við Gunnar fengum það afhent um helgina sem leið og erum nú að hefjast handa við að pæla, hanna og innrétta. Til að byrja með verður aðeins herralína JÖR by Guðmundur Jörundsson fáanleg í versluninni en við ætlum líka að bjóða upp á ódýrari og klassískari vörur á borð við jakkaföt, boli og skyrtur, sem ég mun einnig sjá um að hanna. Ég er einn í þessu núna, en vonin er að geta sett saman gott hönnunarteymi í framtíðinni," segir hinn vinnusami hönnuður að lokum. Feginn að Chris Brown hætti viðChris Brown og Frank Ocean.Stílisti söngvarans Chris Brown óskaði eftir jakkafötum frá herrafatalínu Kormáks og Skjaldar í haust. Stílistinn var á höttunum eftir fötum fyrir Brown til að klæðast er hann sótti tískuvikuna í London. Svo fór að söngvarinn varð heldur viðstaddur MTV-tónlistarhátíðina og því voru jakkafötin send aftur til baka. Guðmundur segist feginn því að söngvarinn hafi ekki klæðst hönnun sinni. "Ég hafði mjög blendnar tilfinningar gangvart þessu því hann er ekki fyrirmyndin sem ég vil að klæðist fötunum mínum. Ég er því nokkuð feginn að þetta hafi ekki gengið upp," segir Guðmundur og vísar þar til ofbeldisfullrar fortíðar söngvarans. Brown gekk í skrokk á kærustu sinni, söngkonunni Rihönnu, árið 2009 og var í kjölfarið dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi, samfélagsþjónustu og skikkaður í meðferð við bræði. Þann 14. júní 2012 lentu Brown og rapparinn Drake í slagsmálum á skemmtistað með þeim afleiðingum að átta manns slösuðust. Nú á sunnudag lenti Brown í slagsmálum við söngvarann Frank Ocean.
RFF Tengdar fréttir Þessir hönnuðir sýna á RFF í ár Tískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival fer fram samhliða HönnunarMars dagana 14. til 16. mars. Átta hönnuðir hafa verið valdir til að sýna hönnun sína. Þeirra á meðal er Mundi sem kynnir nýtt samstarf sitt við 66°Norður. 29. janúar 2013 16:45 Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið „Hefði ekki getað gengið betur“ Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira
Þessir hönnuðir sýna á RFF í ár Tískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival fer fram samhliða HönnunarMars dagana 14. til 16. mars. Átta hönnuðir hafa verið valdir til að sýna hönnun sína. Þeirra á meðal er Mundi sem kynnir nýtt samstarf sitt við 66°Norður. 29. janúar 2013 16:45