
Drættir í heildarmynd óskast
Nýting orkulinda hefur að verulegu leyti byggst á orkufrekum iðnaði. Endalausar deilur vakna um raforkuverð, iðjuver, sæstreng og hvaða ár eða jarðhitasvæði megi virkja. Litlu hefur þar miðað til lendingar. Einfaldar staðreyndir heyrast varla, t.d. að 500-600 MW þurfi til að koma til móts við íbúaþróun og hægan vöxt venjulegra umsvifa fram til 2050 – hvað þá ef framleiða á vistvænt eldsneyti fyrir samgöngur og flota. Með þessu er fátt eitt nefnt sem miklu máli skiptir um framvindu orkumála í landinu. Raforkuauðlindir okkar næstu fjörutíu árin eru afar takmarkaðar að öllu óbreyttu; innan við tvöföldun núverandi afls ef allt er til tekið – en sem ekki verður raungert vegna margvíslegra sjónarmiða er þarf að sætta. Þar hljóta að koma inn atriði eins og áhersla á innlenda nýtingu raforku til að framleiða t.d. mat, eldsneyti og hátæknivörur. Þar duga stefnuyfirlýsingar í skýrslum skammt.
Stærstu flotarnir
Stærsti bílafloti heims og stærsti fiskiskipafloti heims (miðað við höfðatölu) ásamt mörg hundruð vöruflutningabílum, 800 þúsund tonna álframleiðsla á ári og útblástur jarðhitaorkuvera skipa Íslendingum á bekk með mengunarglöðustu þjóðum. Gildir þá einu þótt við losum aðeins einn þúsundasta af gróðurhúsalofttegundum heims. Deilur eða umræður um þá stöðu og úrbætur eru fremur hljóðar. Ástæðurnar eru nokkrar. Ein er sú að allt of margir hafa enn ekki gert sér fulla grein fyrir hve langt kolefnisbrennsla og gróðurhnignun á heimsvísu hefur leitt mannkynið, hvað sem öllum náttúrulegum hitasveiflum líður.
Allt of margir sjá ekki hve langt hlýnunin mun ná næstu áratugi, jafnvel þótt dregið verði úr gaslosun og hve fokdýrum vanda við verðum að taka á, bara í ljósi sjávarborðshækkunarinnar. Allt of margir hér, en þó sérlega meðal stórþjóðanna, halda í þá tálsýn að hlýnunin eigi sér náttúrulegar orsakir að mestu og fljótlega snúist þróunin við. Ekki einu sinni sú staðreynd að í fyrsta sinn á milljón árum gengur koltvísýringsaukningin á undan hlýnun en verður ekki eftir meginhlýnunina eins og við náttúrulegar sveiflur. Heldur ekki sú staðreynd að árleg aukning gasmagnsins í lofti er hraðari en verið hefur á öðrum hlýindaskeiðum í 800 þúsund ár og magnið að ná áður óþekktum hæðum. Pollýönnuleikur dugar skammt þegar alvaran er annars vegar.
Vissulega ber að virða og þakka tryggð Íslands, vegna starfa stjórnvalda og þá einkum umhverfisráðuneytsins, við Kyoto-bókunina - eins þótt sagan muni dæma hana sem lítils megnuga í heild, frá 1997, því miður. Samkomulagið var framlengt til 2020 í Doha, með átaki allmargra þjóða sem standa fyrir aðeins 15% losunar gróðurhúsalofttegunda. Þarna erum við meðal skynsamari þjóðanna, svo langt sem það nær.
Þolmörkin
Íslendingar hafa skuldbundið sig til að minnka losun gasanna um 20%. Þá þarf meiri umræður, samstöðu, skýr markmið, skilvirkar lausnir og skilning á að í raun verður að gera betur, bæði heima og heiman. Vonin um að þjóðir heims geri með sér bindandi losunarsamning sem innan þriggja ára er enn afar dauf.
Ég bendi á að inn í umræður um samdrátt við losun hér á landi verður að blanda hugmyndum eða áætlunum um leit og hugsanlega vinnslu dýrrar olíu norðan við Ísland, bæði á Drekasvæði (okkar torfa) og við Grænland (annarra torfur). Mikið vinnsludýpi á fyrrnefnda svæðinu og gríðarlegt rek stórra borgarísjaka við Austur-Grænland setja olíuvinnsluna í flokk óþolandi áhættuatriða, svo ekki sé minnst á önnur hæpin úrlausnarefni við gas- eða olíuvinnsluna, jafnvel kolavinnslu í norðrinu. En það allt er þó léttvægara en að ætla sér yfirhöfuð að halda áfram að brenna jarðefnaeldsneyti í auknum mæli næstu áratugi. Sannarlega liggja miklir peningar í norðurslóðaolíunni, ef hún er vinnanleg, en útilokað að láta eins og reynslan af rangri stefnu í náttúrunytjum (skógar, mýrar, síld, virkjunarstefna á öldinni sem leið o.s.frv.) kenni okkur ekki neitt. Skammsýn sölumennska á heldur ekki við.
Finnist olía á norðurslóðum og verði unnt að teygja þolmörk heimsins til að vinna hana á fáeinum forsvaranlegum stöðum, má aðeins nota hana sem takmarkaða auðlind í efnaiðnaði. Þetta eiga að vera tímabundin skilaboð Íslendinga um leið og þeir stuðla áfram að samvinnu þjóða um nýtingu og siglingar á norðurslóðum.
Olíuleit er ekki sjálfvirk ávísun á vinnslu en ástand í loftslagsbeltum jarðar verður brátt sjálfvirkur loki á síaukna losun gróðurhúsalofttegunda, eins þótt ársmeðalhiti heims hækki aðeins um 2 stig í stað 0,8 °C sem nú þegar valda víðtækum jákvæðum og neikvæðum umhverfisbreytingnum. Meira að segja hörðustu efasemdarmenn í loftslagsmálum vita að þar liggja þolmörkin. Vanti einhvern hlutlægar upplýsingar um kolefnisbúskap jarðar má benda á nýja bók Sigurðar R. Gíslasonar: Kolefnishringrásin.
Skoðun

Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi
Þórir Garðarsson skrifar

Hversu lítill fiskur yrðum við?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Þjóðin vill eitt, Kristrún annað
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til!
Steinunn Þórðardóttir skrifar

Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld
Hannes Örn Blandon skrifar

Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd
Björn B. Björnsson skrifar

Söngur Ísraels og RÚV
Ingólfur Gíslason. skrifar

Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur
Kristinn R Guðlaugsson skrifar

Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza!
Viðar Eggertsson skrifar

Kærleikurinn pikkaði í mig
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Friðun Grafarvogs
Stefán Jón Hafstein skrifar

Torfærur, hossur og hristingar!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi
Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar

Við munum aldrei fela okkur aftur
Kári Garðarsson skrifar

Er Kópavogsbær vel rekinn?
Bergljót Kristinsdóttir skrifar

Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar

Um sjónarhorn og sannleika
Líf Magneudóttir skrifar

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar