Sjötíu milljónir til listhópa Jakob Bjarnar skrifar 20. desember 2013 11:02 Einar Örn segir nauðsynlegt að listamenn hafi um það að segja hvert styrkirnir renni.
Einar Örn Benediktsson stjórnaði úthlutun Reykjavíkurborgar til menningarverkefna og fá 85 hópar fé til starfsemi. Að sögn Einars Arnar lúta áherslurnar að barnamenningu, bókmenntum, samstarfi stofnana á sviði menningar og lista og þátttöku nýrra hópa í menningarstarfi. „Þetta voru fjórar áherslur sem lágu til grundvallar og leiðarljósið fengum við frá Bandalagi íslenskra listamanna. Við leituðum eftir tillögum þaðan og það var gert til að ekki væri um geðþóttaákvarðanir pólitíkusa að ræða. Nauðsynlegt að listamenn ákveði fyrir listamenn.“ Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar samþykkti styrkveitingar borgarinnar fyrir næsta ár á fundi sínum þann 16. desember og fara alls 67.2 milljónir króna í þetta og er veitt til 85 menningarverkefna. Fleiri borgarhátíðir fá nú stuðning en stuðning. Nordic Affect verður tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2014. Um var að ræða 175 umsóknir og var sótt um alls 268 milljonir króna. Einar Örn segir styrkina ekkert hafa aukist á undanförnum árum, en nefnir sérstaklega að nauðsynlegt sé að styrkja borgarhátíðir og auka úrval þeirra en þetta þarf að skipuleggja með góðum fyrirvara. Einar Örn mun ekki gefa kost á sér aftur í borgarpólitíkina eftir þetta kjörtímabil og gerir ráð fyrir því að láta aftur til sín taka í netheimum hvar hann hefur verið viðloðandi frá 1995. „Ætli ég leiti ekki á þau mið. Ég ætla bara að klára þetta tímabil. Nauðsynlegt og gaman að sjá nýtt fólk koma inn. Lærdómurinn er sá að þeir sem áhuga hafa á geti komið að málum. Freistandi er nú fyrir mig að sækja um útvarpsstjórastöðuna þar sem ég er með próf í fjölmiðlafræði. Er ekki svolítill útvarpsstjóri í mér fyrst ekki er borgarstjóri?Úthlutunin sundurgreind En, eins og segir í tilkynningu: Gerður verði samstarfssamningur við Menningarfélagið Tjarnarbíó (MTB) um rekstur Tjarnarbíós vegna áranna 2014, 2015 og 2016 að upphæð 10 m.kr. árlega með fyrirvara um samþykki borgarráðs. Gerðir verði samstarfssamningar vegna áranna 2014, 2015 og 2016 við eftirtaldar hátíðir með framlagi úr Borgarhátíðasjóði með fyrirvara um samþykki borgarráðs: Sónar Reykjavík 4 m.kr., Reykjavík Midsummer Music 2 m.kr, Tectonics tónlistarhátíðin 2 m.kr. Gerður verði samningur við Heimili kvikmyndanna – Bíó Paradís ses. til eins árs vegna Kvikmyndahátíðar í Reykjavík 2014 að fjárhæð 8 m.kr. Tónlistarhópurinn Nordic Affect verði útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2014 og hljóti 2 m. kr. styrk., en hópurinn hefur markað sér sérstöðu með flutningi Barokktónlistar og notkun upprunalegra hljóðfæra en teflt þeim arfi saman við tónsköpun lifandi tónskálda og ýmis konar úrvinnslu m.a. með notkun raftækninnar.Styrkir til verkefna árið 2014: 1.8 m.kr. - Kammersveit Reykjavíkur, Stórsveit Reykjavíkur, Caput. 1.1 m.kr. - Nýsköpunarsjóður tónlistar – Musica Nova. 1 m.kr. - Menningarhúsið Skúrinn co. Maður og kona ehf., Múlinn Jazzklúbbur. 800 þús. kr. - Mýrin – barnabókmenntahátíð, ASSITEJ - sviðslistahátíð. 700 þús.kr. - Reykjavík Fashion Festival, Krumma Films ehf., Reykjavík Shorts & Docs, Listvinafélag Hallgrímskirkju, List án landamæra, Alþjóðlega tónlistarakademían. 600 þús.kr. - IBBY á Íslandi, Spark design space ehf., Helga Rakel Rafnsdóttir vegna heimildamyndar, Lab Loki, Möguleikhúsið, Draumasmiðjan, Vala Ómarsdóttir vegna leikhús- og hljóðverks, Sequences myndlistarhátíð, Íslensk grafík, Rodent ehf. vegna Heimstónlistar í Reykjavík. 500 þús.kr. - Listafélag Langholtskirkju, Félag íslenskra kvenna í tónlist, Gunnsteinn Ólafssson vegna ævintýraóperunnar Baldursbrá, Óperarctic félagið, Listasafn ASÍ, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Söngfjelagið, Tónlist á gráu svæði vegna tónlistarhátíðarinnar Jaðarber, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. 400 þús.kr. - King og Kong v. dansleikhusverks, Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, Þyri Huld Árnadóttir vegna barnaverksins OFUR!, Kvikmyndafélag Íslands vegna Stuttmyndadaga, Leikfélagið Hugleikur, Vigdís Jakobsdóttir vegna leikritsins Útlenski drengurinn, María Ingibjörg Reyndal vegna leikritsins Mannasiðir, Edda Björg Eyjólfsdóttir vegna Galdra-Lofts, Týsgallerí, Tónlistarhátíðin Podium Festival, Reykjavík Folk Festival, Örn Magnússon vegna Kirkjulistahátíðar í Breiðholti, Tónskóli Sigursveins vegna afmælisdagskrár, Krúnk ehf. vegna gallerís Þoku, Elektra Ensemble,15:15 tónleikasyrpan, Midnight Sun Guitar Festival, Kammermúsíkklúbburinn. 300 þús.kr. - Anna Dröfn Ágústsdóttir vegna bókarinnar Reykjavík eins og hún hefði getað orðið, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir vegna rafbókar fyrir börn, Erla Steinþórsdóttir vegna vinnusmiðju fyrir börn, Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverks, Gjóla ehf. vegna leikverksins Reykur, Aldís Gyða Davíðsdóttir vegna leiksýningarinnar Fiskabúrið, Alexandra Chernyshova vegna óperunnar The Medium, Lúðrasveit verkalýðsins, Elfa Lilja Gísladóttir vegna Upptaktsins 2014, Félag íslenskra tónlistarmanna, Adapter, Lúðrasveitin Svanur, Stelpur rokka!, Lúðrasveit Reykjavíkur, Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverksins Til Þín frá okkur, Smekkleysa vegna verkefnisins Orðið tónlist. 250 þús.kr. - Folk Dance Festival, Raflost. 200 þús.kr. - Steinunn Ketilsdóttir vegna dansverksins Nordic Blonde, Ástbjörg Rut Jónsdóttir vegna dansleikhúsverksins Golden Age, Handverk og hönnun, Fatahönnunarfélag Íslands, Áslaug Thorlacius vegna myndlistarsýningarinnar Myndir Ingileifar, Bjarki Sveinbjörnsson vegna Söngsagna úr Reykjavík, Pamela De Sensi vegna barnatónleika á Myrkum músíkdögum, Tónlistarhópurinn Kúbus,Vox Feminae. 150 þús.kr. - Brynja Pétursdóttir vegna Street dans einvígisins, Hjörtur Jóhann Jónsson vegna leikverksins Illsku. 100 þús.kr. - Camerarctica. Auk þeirra styrkja sem nú voru samþykktir eru tíu borgarhátíðir þegar með samninga vegna framlags árið 2014 fyrir samtals 35.5 m.kr. og sjö samstarfssamningar eru jafnframt í gildi fyrir samtals 25.2 m.kr. Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar skipa: Einar Örn Benediktsson formaður, Margrét Kristín Blöndal, Eva Baldursdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir og Davíð Stefánsson. Ráðgefandi faghóp frá Bandalagi íslenskra listamanna um styrkina skipuðu: Gunnar Hrafnsson formaður, Ólöf Nordal, Randver Þorláksson, Magnea J. Matthíasdóttir og Valdís Óskarsdóttir.
RFF Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Fleiri fréttir Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira