Blaðamannafundur vegna skotárásar í Árbæ Haukur Viðar Alfreðsson og Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 2. desember 2013 10:35
Ríkislögreglustjóri og Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafa boðað til blaðamannafundar vegna atburðanna í Árbæ í nótt og í morgun. Lögreglan var kölluð út að Hraunbæ um þrjúleytið í nótt þegar 59 ára karlmaður hóf að skjóta af byssu út um glugga. Þegar lögreglan kom á vettvang skaut maðurinn á hana. Skot gengu á milli lögreglunnar og mannsins fram eftir nóttu. Að lokum var maðurinn yfirbugaður og lést hann af skotsárum skömmu eftir komuna á bráðamóttöku Landspítalans. Fundurinn hefst klukkan 11 og verður í beinni útsendingu hér á Vísi og á Bylgjunni.Uppfært kl. 11:00 Fundurinn er sagður hefjast eftir fáeinar mínútur.Uppfært kl. 11:12 „Við höfum sett okkur í samband við innanríkisráðherra vegna atviksins sem á sér ekki fordæmi á Íslandi og Ríkissaksóknara,“ segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Stefán Eiríksson tók til máls og greindi nánar frá atburðarásinni, en tilkynning barst klukkan þrjú frá nágrönnum um þrjúleytið í nótt um hávaða og hvelli. „Þegar lögreglan reynir að hafa samband við íbúann koma engin svör frá honum. Sérsveitarmenn fara inn í íbúðina og þá er skotið á þá. Skot lenti í hlífðarskildi eins lögreglumannanna sem féll í kjölfarið niður stiga og dró lögregla sig þá til baka. Íbúðir voru rýmdar og þeim aðgerðum lauk um klukkan fimm í nótt. Allt tiltækt lögreglulið var sent á vettvang. Reynt var að yfirbuga hann með beitingu gasvopna sem bar ekki árangur. Þá hóf maðurinn að skjóta út um glugga á íbúðinni og þá var ákveðið að ráðast inn. Þá gerist það að hann skýtur á ný að lögreglumönnunum í höfuð eins sérsveitarmannanna, en hann var með hjálm og sakaði ekki.“ Stefán segir lögreglumennina tvo hafa meiðst lítillega en búnaður hafi komið í veg fyrir frekari áverka.Uppfært kl. 11:16 Lögreglan getur ekki svarað því hvort hún hafi þurft að hafa afskipti af manninum áður eða hvort hann sé á sakaskrá.Uppfært kl. 11:19 Lögreglan réðst inn og skaut manninn og yfirbugaði hann. Þetta er í fyrsta sinn sem maður deyr af völdum skotvopna í átökum við lögreglu. Maðurinn var vopnaður haglabyssu, ekki er hægt að upplýsa um hvort hann sé skráður fyrir henni sjálfur. Ekki er hægt að upplýsa um hvort annar maður var í íbúðinni með manninum, en á þessu stigi er hann einn grunaður um aðild að málinu. Lögreglan segir íbúa hafa verið í mikilli hættu meðan á þessu stóð. Ekki þótti ástæða til að rýma fleiri stigaganga.Uppfært kl. 11:21 Milli 15 til 20 lögreglumenn komu að málinu og síðan sérsveitarmenn að auki. Ríkissaksóknari mun rannsaka málið héðan í frá og kallar þá til sem þarf. Ekki hægt að upplýsa um af hversu mörgum skotum var hleypt í íbúðinni, hvorki af hendi lögreglu eða mannsins. Lögreglumenn sem komu að málinu hafa fengið áfallahjálp frá sálfræðingi lögreglunnar og munu fá frekari hjálp í framhaldinu.Uppfært kl. 11:23 Einn sérsveitarmanna fékk skot í hjálm og andlit, annar í vesti og hönd. Ekki er vitað hvað manninum gekk til, ekki er heldur hægt að svara hvort hann var undir áhrifum áfengis eða vímuefna.Uppfært kl. 11:25 Stefán Eiríksson segir sína menn hafa brugðist hárrétt við í upphafi og fengið sérsveitina með sér. Stefán segir að fyrsta tilkynningin hafi borist klukkan þrjú, aðeins ein hafi borist, þó fleiri kunna að hafa hringt inn.Uppfært kl. 11:27 Lögreglan kom upp sjónpóstum, lögreglumönnum sem horfðu inn í íbúðina úr fjarlægð til að staðsetja manninn í íbúðinni. Lögreglan notar 9mm skotvopn. Hefðbundin lögregluskotvopn eru skammbyssur og hríðskotabyssur.Uppfært kl. 11:31 Haraldur segir að vinnureglan sé sú að skotvopn lögreglumannanna hafi verið tekin til hliðar vegna rannsóknar ríkissaksóknara. Allir sérsveitarmenn eru enn við störf og hafa fengið ný vopn. Hluti af sérsveitinni er þjálfaður í notkun riffla og þeir manna sjónpóstana, eru með bestu sjónaukana, ekki gefið upp hvort þeir skutu. Engir lögreglumenn fara í frí eftir atburðinn. Þeir munu halda áfram störfum nema þeir óski eftir öðru. Ekkert sem bendir til þess að neinn hjá lögreglunni hafi hegðað sér með öðrum hætti en sem vera ber segir Haraldur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri munu ekki tjá sig frekar um málið eftir þennan fund meðan rannsókn ríkissaksóknara stendur yfir.Uppfært kl. 11:32 Fundinum er lokið.Uppfært kl. 12:45 Nú er hægt að horfa á upptöku af blaðamannafundinum í heild sinni hér fyrir ofan og á Vísir Sjónvarp. Einnig er að finna styttri upptöku af fundinum á Vísir Útvarp.
Byssumaður í Árbæ Tengdar fréttir Íbúi við Hraunbæ: Heyrði um fimmtíu skot „Það voru fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði engar áhyggjur af þessu,“ segir íbúi við Hraunbæ, þar sem lögregla yfirbugaði byssumann í morgun. 2. desember 2013 09:48 Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað. 2. desember 2013 06:21 Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni. 2. desember 2013 08:26 NÁGRANNAR UM BYSSUMANNINN: „Hann var bara búinn að vera ruglaður í hálfan sólarhring“ Íbúar í Hraunbæ eru slegnir eftir viðburðina í morgun en lögreglan yfirbugaði byssumann á sjönda tímanum. Nágrannar voru vaktir af lögreglu og þeir fluttir með strætisvagni í Árbæjarkirkju þar sem fjöldahjálparmiðstöð hafði verið sett upp. 2. desember 2013 08:15 Nágranni byssumannsins: „Var svo hrædd að ég vildi ekki vekja börnin“ Íbúum við Hraunbæ er brugðið eftir skothríð sem varð þar á sjöunda tímanum í morgun. 2. desember 2013 08:02 Maðurinn lést af völdum skotsára Lést skömmu eftir komu á bráðadeild Landspítalans af skotsárum. 2. desember 2013 09:53 Búið að yfirbuga manninn Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður. 2. desember 2013 06:57 „Hann er að koma út“ Nágrannar byssumannsins í Hraunbæ fylgdust með þegar sjúkrabílar fluttu hann á brott. 2. desember 2013 10:24 „Hann tók bara Rambó á þetta“ Íbúi við Hraunbæ lýsir því hvernig lögreglan yfirbugaði byssumanninn í morgun. 2. desember 2013 09:04 Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp "Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins. 2. desember 2013 09:38 Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira
Íbúi við Hraunbæ: Heyrði um fimmtíu skot „Það voru fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði engar áhyggjur af þessu,“ segir íbúi við Hraunbæ, þar sem lögregla yfirbugaði byssumann í morgun. 2. desember 2013 09:48
Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað. 2. desember 2013 06:21
Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni. 2. desember 2013 08:26
NÁGRANNAR UM BYSSUMANNINN: „Hann var bara búinn að vera ruglaður í hálfan sólarhring“ Íbúar í Hraunbæ eru slegnir eftir viðburðina í morgun en lögreglan yfirbugaði byssumann á sjönda tímanum. Nágrannar voru vaktir af lögreglu og þeir fluttir með strætisvagni í Árbæjarkirkju þar sem fjöldahjálparmiðstöð hafði verið sett upp. 2. desember 2013 08:15
Nágranni byssumannsins: „Var svo hrædd að ég vildi ekki vekja börnin“ Íbúum við Hraunbæ er brugðið eftir skothríð sem varð þar á sjöunda tímanum í morgun. 2. desember 2013 08:02
Maðurinn lést af völdum skotsára Lést skömmu eftir komu á bráðadeild Landspítalans af skotsárum. 2. desember 2013 09:53
Búið að yfirbuga manninn Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður. 2. desember 2013 06:57
„Hann er að koma út“ Nágrannar byssumannsins í Hraunbæ fylgdust með þegar sjúkrabílar fluttu hann á brott. 2. desember 2013 10:24
„Hann tók bara Rambó á þetta“ Íbúi við Hraunbæ lýsir því hvernig lögreglan yfirbugaði byssumanninn í morgun. 2. desember 2013 09:04
Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp "Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins. 2. desember 2013 09:38