Aníta fær enn ein verðlaunin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2013 13:45 Mynd/NordicPhotos/Getty
Frjálsíþróttakonan Aníta Hinriksdóttir hefur safnað að sér verðlaunum á árinu 2013 og á dögunum fékk bætti hún enn einum við þegar þessi stórefnilega hlaupakona var kjörin frjálsíþróttakona ársins. Spjótkastarinn Guðmundur Sverrisson var kosinn frjálsíþróttakarl ársins. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins.Guðmundur Sverrisson keppir fyrir ÍR en hann kastaði 80,66 metra í spjótkasti á Meistaramóti Íslands í sumar en hann bætti sig þá um 6,57 metra og var aðeins 44 sentímetrum frá lágmarki á HM. Guðmundur varð einnig Smáþjóðaleikameistari í spjótkasti og annar í keppni sinni í Evrópubikarkeppni landsliða. Hann var ósigrandi á mótum í sumar hérlendis og endaði árið í 46. sæti á heimslistanum.Aníta Hinriksdóttir keppir einnig fyrir ÍR en hún tvíbætti Íslandsmet kvenna í 800 metra hlaupi á árinu. Aníta varð Heimsmeistari 17 ára og yngri í 800 metra hlaupi, Evrópumeistari 19 ára og yngri í 800 metra hlaupi og Norðurlandameistari 19 ára og yngri í bæði 800 og 1500 metra hlaupi. Aníta á nú áttunda besta árangur í sínum aldursflokki í 800 metra hlaupi og endaði árið í 44.sæti á heimslista fullorðinna. Ein allra stærsta viðurkenning Anítu á árinu var þó þegar hún var valin vonarstjarna Evrópu af Frjálsíþróttasambandi Evrópu í haust. Aníta á nú fimm bestu tímana sem íslensk kona hefur hlaupið í 800 metra hlaupi en þar á undan hafði Íslandsmetið staðið óhaggað í 28 ár.Mynd/Frjálsíþróttasamband Íslands
Frjálsar íþróttir Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fleiri fréttir Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Náðu að vinna sterkt spænskt lið Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Sjá meira