
Fáir hafa flutt sig frá Vodafone

Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins, en fjóra fyrstu dagana eftir árásina fluttu 297 viðskiptavinir sig annað frá Vodafone. Til samanburðar er þess getið að á fjögurra daga tímabili viku fyrr færðu 142 viðskipti sín frá Vodafone til annars fyrirtækis.
Heildarfjöldi GSM-viðskiptavina Vodafone er um 110 þúsund, og nemur því heildafjöldi uppsagna á tímabilinu því einungis um 0,27 prósent viðskiptavina í GSM-áskrift þó að um tvöföldun á uppsögnum sé að ræða.
Hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu mest um 15 prósent á mánudeginum eftir árásina, en hún var gerð um seinustu helgi.
Tengdar fréttir

Vodafonelekinn: Hefur djúpstæð áhrif á sálarheill fólks
"Þetta mun mögulega kom til með að hafa djúpstæðar afleiðingar á líf og líðan nokkurra einstaklinga," segir sálfræðingur um árásina á Vodafone. Þúsundir persónulegra skilaboða eru nú í dreifingu á meðal manna og getur slíkt haft alvarlegar afleiðingar fyrir sálarheill fólks.

Fyrri árásir ógnuðu ekki upplýsingaöryggi
Vodafone sá ekki ástæðu til að senda tilkynningu til Póst- og fjarskiptastofnunar eftir að ráðist var á vefsíðu fyrirtækisins í tvígang, þann 7. mars í fyrra og 3. maí í ár.

Tyrkneski hakkarinn skoðaði líka síðu Símans
Sömu ip-tölur og tengjast árasinni á vef Vodafone, voru skráð í kerfið hjá Símanum í fyrrinótt.

Vodafone biðst afsökunar
Munu veita fólki aðgang að gögnum um sig sem gerð voru opinber.

Þúsundir lykilorða komin á netið
30 þúsund kennitölur, ásamt símanúmeri og netföngum, eru meðal þeirra upplýsinga sem láku á netið í morgun. Hanna Birna Kristjánsdóttir segir ráðuneytið vinna í málinu með viðeigandi undirstofnunum.

Leki sem snertir tugþúsundir einstaklinga
Gengi hlutabréfa Vodafone hríðféll í Kauphöllinni í dag og hafa fjölmargir viðskiptavinir sagt skilið við fyrirtækið. Eitt af fórnarlömbum lekans mikla um helgina ítrekar að prívat gögn séu prívat, þó að þeim sé stolið. Innanríkisráðherra fordæmir tölvuárásina.

Gengi Vodafone stóð í stað
Áhrif innbrotsins á vef Vodafone og gagnalekans, voru ekki mikil á hlutabréfaverð félagsins í Kauphöllinni í dag.

Ástar- og kynlífsfíklar fórnarlömb Vodafone-lekans
Meðal þeirra viðkvæmu persónuupplýsinga sem er að finna í gögnum sem stolið var frá Vodafone eru smáskilaboð sem send voru frá samtökum sem almennt grundvallast á nafnleynd.

Skaðinn af netárásinni á Vodafone varanlegur
Aðeins er tímaspursmál hvenær mikilvægir innviðir íslensks samfélags verða fyrir árás.

Ráðist hefur verið á vef Vodafone í þrígang
Ráðist hefur verið í þrígang á vefsíðu Vodafone á Íslandi síðastliðin tvö ár en þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Forstjóri Vodafone: Fyrirtækið rúið trausti
Fyrirtækið er rúið trausti, segir forstjóri Vodafone. Hann segir mistök hafa valdið því að viðkvæm gögn um viðskiptavini Vodafone hafi verið geymd lengur en lög geri ráð fyrir.

Vodafone lækkaði um 12 prósent í dag
Gengi hlutabréfa Vodafone hafði lækkað um 12,1 prósent við lokun Kauphallarinnar í dag.

Óvíst hvort geymsla sms-skilaboða hafi verið lögbrot
Forsvarsmenn Vodafone sögðu á fundi Umhvefis- og samgöngunefndar í morgun, að geymsla sms-skilaboða af vefnum hafi þeir ekki endilega brotið lög.

Talinn fíkniefnasali eftir Vodafone-leka
Spilum ruglað saman við fíkniefni. Eyjólfur Þorleifsson, spilasmiður með meiru, er talinn dópsali eftir Vodafone-lekann og frjálslega túlkun netverja á sms-skilaboðum hans.

Engar úttektir á SMS-gagnagrunnum
Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir stofnunina hvorki hafa afkastagetu né fjármuni til að gera úttektir á fjarskiptafyrirtækjunum. Miðað við fjárlög fyrir næsta ár verður ekki breyting þar á.

Um 10 þúsund manns sótt Vodafone gögnin
Hægt er að sækja gögnin á vefsíðunni Deildu.net en Vodafone hefur biðlað til fólks að dreifa ekki gögnunum.

Forsvarsmenn Vodafone mættu fyrir umhverfis- og samgöngunefnd
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, óskaði eftir fundinum vegna innbrots á vefsíðu fyrirtækisins aðfaranótt laugardags.