Heillandi strákur en á erfitt með að setja saman IKEA-hillu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. september 2013 09:00 „
Hann var ekkert rosalega harður af sér í fótboltanum. Það var eitt tímabil þar sem hann var frá hálft tímabil útaf brunasári.“ Þannig lýsir knattspyrnudómarinn Gunnar Jarl Jónsson einum af göllum nýs landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu, Freys Alexanderssonar. Þeir Freyr eru bestu vinir og uppeldisbræður úr Breiðholtinu. Ísland mætir Sviss í fyrsta leik kvennalandsliðsins í knattspyrnu undir stjórn Freys á fimmtudag. Af því tilefni var sýnd nærmynd af kappanum í íþróttafréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. „Hann er fyrst og fremst mjög heillandi,“ segir Erla Súsanna Þórisdóttir, unnusta Freys. Aðspurð hvort hennar heittelskaði hafi ekki einhverja galla segir Erla sinn mann ekki góðan í að muna eftir afmælisdögum. „Hann er ekki mjög handlaginn. Fyrir hann að setja upp einfalda IKEA-hillu er eins og að reyna að kljúfa atóm,“ segir Erla. Þá óskar hún eftir að Freyr fari að sýna gamalkunna Elvis Presley takta sem lítið hafi farið fyrir upp á síðkastið. Dóra María Lárusdóttir, Gunnar Jarl Jónsson og Valur Gunnarsson rifja upp sögur af Frey. Draugahús í Færeyjum og hangs í síma kemur þar við sögu. Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan. Leikur Íslands og Sviss fer fram á fimmtudagskvöldið klukkan 18.30. Hægt er að nálgast miða á leikinn hér.
Íslenski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira