Harry Bretaprins var hér staddur á dögunum og ef marka má fréttavefinn Vötn og veiði, þá var hann við veiðar í Langá í tvo daga og landaði nokkrum löxum.
Ekkert nýtt er í því að breskt kóngafólk standi við bakka íslenskra laxveiðiáa. Þannig kom Karl ríkisarfi, faðir Harrys, nokkrum sinnum til Íslands sérstaklega til að renna fyrir lax.
Á vef Vatna og veiða kemur fram að Harry var ekki aðeins hér til að veiða lax í Langá heldur kom hann hingað til að styðja góðgerðarsamtökin „Walking With the Wounded" sem eru í samvinnu við "South Pole Allied challenge" að undirbúa göngu á Suður Pólinn í nóvember. Einhverjir úr hópnum hafa verið við æfingar á Langjökli í sumar. Umrædd samtök sérhæfa sig í endurmenntum fyrrum hermanna.
Harry Bretaprins landaði löxum í Langá
