Handbolti

Sveinn á leiðinni í Safamýrina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Þorgeirsson er að öllum líkindum á leiðinni til Íslandsmeistara Fram en hann hefur verið á mála hjá Haukum.

Framarar urðu Íslandsmeistarar á síðustu leiktíð en hafa misst töluvert marga leikmenn frá liðinu fyrir komandi átök í vetur.

„Ég hef verið í viðræðum við Framarana en það er ekkert komið í ljós og enginn samningurinn kominn á borðið,“ segir Sveinn.

„Þetta mun líklega skýrast á næstu dögum þar sem stjórnarmenn Fram eru að koma til baka úr sumarfríi og annað.“

„Ég hef ekki verið ósáttur hjá Haukum en aftur á móti vill ég spila meira og það hefur ekki gengið eftir í Hafnafirðinum.“

Sveinn er vinstri skytta og frábær varnarmaður. Hann ætti því að styrkja Framara umtalsvert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×