Tekjur evrópskra fótboltaliða jukust um 400 milljarða 11. júní 2013 10:03
Tekjur evrópskra fótboltaliða jukust um 11% í fyrra miðað við árið á undan eða um 2,5 milljarða evra sem samsvarar um 400 milljörðum kr. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Deloitte um fjármál Evrópuboltans en hún kemur út í dag. Í tilkynningu frá Deloitte segir að enska úrvalsdeildin heldur áfram að vera tekjuhæst í Evrópu og námu tekjur hennar um 2,9 milljarði evra. Í öðru sæti er sú þýska með um 1,9 milljarð evra. Nýr þriggja ára sjónvarpsréttarsamningur sem tekur gildi tímabilið 2013/14 mun tryggja að enska úrvalsdeildin haldi forystusæti sínum næstu árin. Þýska deildin er eins og áður sagði í öðru sæti og hækkuðu tekjur hennar um 7% milli tímabila sem skýrist af góðu gengi stórliðanna Bayern Munchen og Borussia Dormund. Tekjuaukning þýsku deildarinnar er sú mesta af stóru deildunum og eykst bilið milli þeirrar þýsku og spænsku. Mat sérfræðinga Deloitte er að velgengni þýsku deildarinnar muni halda áfram og þeir séu búnir að tryggja sinn sess sem helstu samkeppnisaðili þeirrar ensku þegar það kemur að tekjum. Spænska deildin er í þriðja sæti og hækkuðu tekjur hennar um 3% og voru 1.765 milljónir evra. Er það aðallega vegna tekjuaukningar hjá Barcelona og Real Madrid en samanlagðar tekjur annarra liða í spænsku deildinni lækkuðu annað tímabilið í röð. Í fjórða sæti er ítalska deildin en tekjur hennar hækkuðu um 1% og voru 1.570 milljónir evra. Mestur hluti tekna ítölsku félaganna kemur af sölu sjónvarpsréttar líkt og áður en það er mat sérfræðinga Deloitte að miklir möguleikar séu fyrir deildina til tekjuaukningar með því að félögin bæti keppnisaðstöðu sína. Juventus tók í notkun nýjan heimavöll á árinu 2011 sem hefur skilað félaginu um 40 milljónum evra í auknar aðgangs- og auglýsingatekjur eða 61% hækkun.Laun leikmanna 320 milljarðar Laun leikmanna í ensku úrvalsdeildinni voru um 2 milljarðar evra eða um 320 milljarðar kr. og hækkuðu um 4% milli tímabila meðan laun leikmanna í ítölsku deildinni voru um 1,2 milljarður evra og nam aukningin um 2%. Á Spáni og Þýskalandi hækkuðu laun um 3% eða í 1.057 milljónir evra í spænsku deildinni og í 953 milljónir í þýsku deildinni. Þýska deildin heldur áfram að vera sú arðsamasta og nemur rekstrarhagnaður liða í þýsku deildinni samtals 190 milljónum evra sem er 11% aukning. Í öðru sæti kemur enska úrvalsdeildin með um 40 milljónir evra í rekstrarhagnað sem er bæting um 49%. Ítalska deildin heldur áfram að berjast í bökkum og jókst tap félaga í deildinni um 11 milljónir evra eða 7%. Sérfræðingar Deloitte taka eftir því að rekstrarafkoma fer batnandi í Englandi, Frakklandi og Þýskalandi en reglur UEFA um fjárhagslegt jafnvægi í rekstri knattspyrnuliða tóku gildi fyrir þetta tímabil.
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira