Matt Kuchar bar sigur úr býtum á Memorial-mótinu sem lauk í Ohio í dag en það er hluti af PGA-mótaröðinni.
Þar með eru þeir Kuchar og Tiger Woods þeir einu sem hafa unnið fleiri en eitt mót á mótaröðinni þetta tímabilið. Woods var hins vegar langt frá sínu besta á mótinu.
Hann spilaði einn sinn versta hring frá upphafi í gær er hann skilaði sér í hús á sjö höggum yfir pari. Hann spilaði á pari í dag og var alls átta höggum yfir pari. Það dugði honum í 65. sæti af þeim 73 sem komust í gegnum niðurskurðinn.
Tiger var 20 höggum frá Kuchar en hann hefur aldrei áður verið svo mörgum höggum á eftir sigurvegara þeirra móta sem hann hefur spilað á.
Sigur Kuchar í dag var nokkuð þægilegur en hann hafði tveggja högga forystu á Kevin Chappell. Bandaríkjamenn röðuð sér í efstu sex sæti mótsins en Kuchar var á samtals tólf höggum undir pari.
Adam Scott hafnaði í þrettánda sæti og Rory McIlroy var litlu skárri en Tiger. Hann var á sex höggum yfir pari í 57. sæti.
