Handbolti

Valdimar Fannar til FH

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valdimar Fannar í búning FH.
Valdimar Fannar í búning FH. Mynd / Handknattleiksdeild FH

Handknattleiksmaðurinn Valdimar Fannar Þórsson hefur gengið til liðs við FH en hann yfirgefur herbúðir Vals.

Þetta verður mikill liðsstyrkur fyrir Fimleikafélagið í komandi átökum í N1-deild karla á næsta tímabilið en FH komst í undanúrslit á nýafstöðnu móti.

Valdimar gerði tveggja ára samning við félagið en þessi 33 ára miðjumaður hefur verið á mála hjá Val undanfarinn þrjú tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×