McLaren verður með Honda-vélar 2015 Birgir Þór Harðarson skrifar 18. maí 2013 19:00
McLaren-liðið í Formúlu 1 mun knýja bíla sína með Honda-vélum frá árinu 2015. McLaren hefur verið með Mercedes-vélar síðan 1995 og átti þýski bílaframleiðandinn hlut í liðinu þar til nýverið. Honda rak keppnislið í Formúlu 1 til ársins 2008 þegar efnahagskreppan neyddi þá til að selja liðið sitt og hætta öllum afskiptum af Formúlu 1. Ross Brawn tók þá yfir liðið og vann það heimsmeistaratitilinn á ævintýralegan hátt árið 2009 undir merkjum Brawn. Vísir greindi frá því í mars að þetta samstarf gæti verið mögulegt eftir að Mercedes-samningurinn væri úti. McLaren og Honda hafa þó áður starfað saman. Á níunda áratug síðustu aldar voru bílar liðsins knúnir Honda-vélum og ekki minni menn en Alain Prost og Ayrton Senna sem óku bílunum. Samstarfið skilaði McLaren og Honda til að mynda sigrum í öllum nema einu móti keppnistímabilið 1988. Martin Whitmarsh, liðsstjóri McLaren, sagði þegar endurnýjað samstarf var kynnt að árið 2015 kæmu saman tveir aðilar sem hafa saman "skapað bestu og eftirminnilegustu atvik í Formúlu 1 allra tíma". McLaren mun nota Mercedes-vélar á næsta ári þegar forþjöppur verða leyfðar á ný í kappakstrinum. Honda hefur því hátt í tvö ár til að undirbúa vélarnar.Geta sinnt fleiri liðumWhitmarsh segir að samningurinn um Honda-vélarnar sé ekki skilyrtur við að japanarnir sinni einungis McLaren-liðinu. Fleiri lið gætu því útvegað sér Honda-vélar fyrir keppnistímabilið 2015. Er það jafnframt bundið í regluverkið um Formúlu 1 að vélaframleiðendur sem þegar skaffa liðum vélar verða að vera tilbúnir að gera samkomulag við fleiri lið, séu vélaframleiðandi ekki að skaffa of mörgum liðum. Jonathan Neale, ramkvæmdastjóri McLaren, segir að liðið væri meðvitað um að önnur lið gætu verið áhugasöm um Honda-vélarnar. "Það er auðvitað betra að Honda svari því en allir vélaframleiðendur taka þátt með það í huga að fleiri lið gætu haft áhuga. Við erum ekki að gera okkur vonir um neitt. Það verður nóg að gera þar til 2015." Myndbrotið hér að ofan er úr Top Gear þegar Lewis Hamilton fékk tækifæri til að aka MP4/4-bílnum sem Ayrton Senna ók árið 1988.Honda á langa sögu í Formúlu 1 bæði sem keppnislið og sem vélaframleiðandi.
Formúla Tengdar fréttir McLaren opið fyrir Honda-vélum 2015 Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren-liðsins, er opinn fyrir því að semja við Honda um vélar fyrir árið 2015. McLaren og Honda áttu gríðarlega farsælt samstarf á níunda og tíunda áratugnum og unnu fjölmarga heimsmeistaratitla saman. 11. mars 2013 21:15 Mest lesið Robertson vildi ekki ræða Liverpool Fótbolti Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Leyndu því að yfir hundrað íþróttamenn höfðu fallið á lyfjaprófi Sport Hlakkar til að mæta syni Eiðs Smára Fótbolti Arnar Guðjónsson tekur við Stólunum Körfubolti Arnar sá Souness slást við leikmenn sína: „Voru allir skíthræddir við hann“ Fótbolti Rekinn frá Tottenham Enski boltinn „Menn eru búnir að læra“ Fótbolti Þarf að velja á milli Ólympíuleika og Onlyfans Sport Sara Björk sá vel um sínar og Ísland mætir Norður-Írlandi í umspili Fótbolti Fleiri fréttir Sakaður um viljandi árekstur: „Bara séð svona í leikjum og go-kart“ Piastri á ráspól Hamilton segir sögusagnir um ósætti vera þvaður Norris vann í Mónakó í fyrsta sinn Lando Norris hrifsaði til sín ráspólinn á elleftu stundu Verstappen tók fram úr á fyrsta hring og fagnaði sigri Hrikalegur árekstur Tsunoda, nýtt áfall fyrir Ferrari og Piastri fremstur Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Var í lífstíðarbanni en er nú aftur orðinn liðsstjóri í Formúlu 1 Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Sjá meira
McLaren opið fyrir Honda-vélum 2015 Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren-liðsins, er opinn fyrir því að semja við Honda um vélar fyrir árið 2015. McLaren og Honda áttu gríðarlega farsælt samstarf á níunda og tíunda áratugnum og unnu fjölmarga heimsmeistaratitla saman. 11. mars 2013 21:15