Dansa Erla og Marín í hálfleik í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2013 13:45 Marín Rós Karlsdóttir, kemur hér skilaboðum til leikmanna Keflavíkur. Mynd/Daníel
Erla Reynisdóttir og Marín Rós Karlsdóttir, margfaldir Íslandsmeistarar með Keflavík og núverandi aðstoðarþjálfarar kvennaliðs félagsins, hafa aftur heitið á stuðningsmenn Keflavíkur fyrir stórleik kvöldsins. Nú tala þær um að dansa í hálfleik mæti yfir 500 manns á leikinn en þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Keflavíkur. Keflavík tekur í kvöld á móti Val í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvígi Dominos-deild kvenna en bæði lið hafa unnið tvo leiki í undanúrslitaeinvíginu. Valskonur hafa unnið báða leikina í Keflavík en Keflavíkurkonur hafa unnið báða leikina á Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en Keflvíkingar ætla að setja grillin í gang klukkan 17.30 og bjóða gestum að fá sér hamborgara og meðlæti fyrir leik. „Stelpurnar voru gríðarlega ánægðar með mætinguna á síðasta leik en skv. talningu aðstoðarþjálfara kvennaliðsins, þeim Erlu Reynisdóttir og Marínu Rós Karlsdóttur, munu 499 manns hafa mætt á leikinn en þær höfðu heitið syngja Adele slagarann "someone like you" til handa stuðningsmönnum í hálfleik ef 500 manns mættu. Í þetta skiptið hafa þær ákveðið að heita á stuðningsmenn aftur og lofa "dansshowi" á miðju gólfinu í hálfleik mæti fleiri en 500 manns. Náum þessu 500 manna takmarki svo hægt verði að herma þetta show upp á stúlkurnar. Sjón ætti að verða sögu ríkari!," segir í fréttinni á heimasíðu Keflavíkur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira