Leita á til ættingja og afkomenda stofnenda veiðifélagsins Flugunnar til að afla heimilda um veiðikofann í Hrunakrók í Stóru-Laxá.
Eins og fram hefur komið á Veiðivísi er Veiðifélag Stóru Laxár og Lax-á að gera upp litla veiðihúsið upp við Hrunakrók. Þessi kofi er kenndur við listamanninn Guðmund í Miðdal.
Til stendur að koma upp veiðminjasafni í Hrunakrókskofanum. "Til að geta komið safninu upp þá vantar okkur að komast í samband við afkomendur og ættingja þessara ágætu stofnenda Veiðifélagsins Flugunar. Við erum að leita af gömlum ljósmyndum sem við mættum afrita og einnig hlutum/veiðiminjum til láns eða kaups sem tengjast þessu merka tímabili," segir í pósti sem Veiðivísi barst frá Lax-á.
Fram kemur að veiðihúsið eigi sér stórmerkilega sögu og gera eigi það upp í upprunalegri mynd. Vilji standi til að safna saman munum og ljósmyndum frá síðustu öld og setja upp lítið en vandað veiðiminjasafn sem verði öllum opið á sumrin.
Þá segir að veiðifélagið Flugan hafi verið atkvæðamikið við Stóru Laxá um árabil og staðið fyrir því að koma upp veiðihúsinu upp við Hrunakrók.
Stofnendur Veiðifélagsins Flugunnar voru:
Sæmundur Stefánsson
Ósvaldur Knudsen
Páll Hallgrímsson
kristinn Hallgrímsson
Guðmundur Jóhansson
Skúli Thorarensen
Runólfur Kjartansson
Magnús Kjaran
Sigurliði Kristjánsson
Guðmundur R. Oddsson
Egill Thorarensen
Guðmundur Einarsson frá Miðdal.
Hákon Guðmundsson
Einar Gíslason.
"Öll hjálp er vel þegin, vinsamlegast hafið samband við Árna Baldursson arnibald@lax-a.is eða í síma 8983601," segir í skeytinu frá Lax-á.

