Þýski kappaksturinn í uppnámi Birgir Þór Harðarson skrifar 28. janúar 2013 22:00 Formúla 1 heimsótti Nürburgring síðast í júlí árið 2011. Ljóst er að brautin mun ekki halda þýska kappaksturinn í ár. nordicphotos/afp
Þýski kappaksturinn í ár mun ekki fara fram á Nürburgring eins og til stóð því samningar hafa ekki náðst milli mótshaldara og Formúlu 1. Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur gefið samninga upp á bátinn. Frá þessu greinir þýska dagblaðiið Der Spiegel í dag en greiðsluvandræði keppnishaldara á Nürburgring hafa verið til umræðu um þó nokkurt skeið. Þýski kappaksturinn hefur undanfarin ár verið haldin til skiptis á Nürburgring og í Hockenheim. Röðin var komin að Nürburgring því kappaksturinn var haldinn á Hockenheim í fyrra. Óvíst er hvort mótshaldarar í Hockenheim geti tekið við þýska kappakstrinum nú. Það eru því aðeins átján mót staðfest fyrir keppnisvertíðina í Formúlu 1 árið 2013 en í fyrra voru mótin 20. Mótið á Nürburgring átti að vera nítjánda mótið og í desember boðaði Ecclestone tuttugasta mótið um miðjan júlí. Útlit fyrir aðeins átján mótEnn er alls óvíst hvort aukamótið fari fram því ekki hefur verið samið við mótshaldara þó nokkrir séu áhugasamir, að sögn Ecclestone. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá veit ég ekki hvort aukamótið verði," sagði Ecclestone þegar Autosport spurði um stöðu mála. „Þeir eru áhugasamir í Frakklandi og nú, einnig í Portúgal. Portúgalar vilja halda mótið á nýju brautinni í Algarve." Áður höfðu brautir í Spielberg í Austurríki og í Istanbúl í Tyrklandi verið til umræðu en möguleikar þessara landa haf horfið á þeim mánuði sem liðinn er síðan Ecclestone boðaði auka mót. Ecclestone viðurkennir þó að líkurnar á því að tuttugasta mótið verði haldið séu mjög litlar. Bæði hafi samningar ekki náðst og keppnisliðin eru mjög óánægð með þann stutta fyrirvara sem gefinn var. „Ef það vill einhver halda tuttugasta mótið, þá mun það verða ef brautin er til staðar og allt í standi. Við getum svo hjálpað til með skipulagninguna." „En, liðin virðast ekki vera fylgjandi því að hafa tuttugu mót í ár svo ég efast um að af mótinu verði."Ecclestone er ekki viss hvort honum takist að halda 20 mót á næsta ári. Útlit er fyrir að þau verði aðeins 18 eða 19.nordicphotos/afp
Formúla Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira