Samkvæmt upplýsingum sem rannsóknarfyrirtækið IDC tekur saman reglulega voru sölutölurnar ekki síst athyglisverðar fyrir árin 2010 og 2011. Ekki liggja fyrir upplýsingar um stöðu mála í lok árs 2012, en vöxturinn hélt áfram á því ári þegar nær öll met voru slegin.
Samsung er stærsta snjallsímafyrirtæki heimsins, og Apple kemur fast á eftir. Aðrir framleiðendur eru nokkuð á eftir þeim. Nokia var framan af einn stærsti söluaðili snjallsíma í heiminum, einkum í Asíu, en salan hefur minnkað mikið, og var langt frá Apple og Samsung á árinu 2012, samkvæmt fréttum, en eins og áður sagði þá liggja heildartölur fyrir það ár ekki fyrir enn. Þá segja sölutölurnar ekki alla söguna, þar sem verð eru misjöfn á símunum, allt eftir gæðum og tegundum.
Tæplega 800 milljónir snjallsíma seldust á heimsvísu á árunum 2010 og 2011, samkvæmt upplýsingum IDC. Þessi sala hefur haft mikil áhrif á ýmsa þjónustu, sem nú er orðin aðgengileg í gegnum snjallsíma, s.s. bankaþjónusta og ýmis smásala.
Sjá má upplýsingar um sölu og markaðshlutdeild, í töflu hér að neðan, en upplýsingar koma frá IDC.
Snjallsímar | 2011 sala á snjallsímum | 2011 Markaðs- hlutdeild | 2010 sala á snjallsímum | 2010 Markaðs-hlutdeild | Breytingar milli ára |
Samsung | 94.0 | 19.1% | 22.9 | 7.5% | 310.5% |
Apple | 93.2 | 19.0% | 47.5 | 15.6% | 96.2% |
Nokia | 77.3 | 15.7% | 100.1 | 32.9% | -22.8% |
Research In Motion | 51.1 | 10.4% | 48.8 | 16.0% | 4.7% |
HTC | 43.5 | 8.9% | 21.7 | 7.1% | 100.5% |
Aðrir | 132.3 | 26.9% | 63.7 | 20.9% | 107.7% |
Samtals | 491.4 | 100.0% | 304.7 | 100.0% | 61.3% |