Úrskurður í máli Rachel Corrie í dag 28. ágúst 2012 02:00 Craig Corrie
Dómstóll í Ísrael mun í dag kveða upp úrskurð í máli foreldra Rachel Corrie sem beið bana á Gaza-ströndinni árið 2003 þegar hún mótmælti eyðileggingu Ísraela á palestínskum heimilum. Rachel Corrie stóð í veginum fyrir jarðýtu og kramdist til bana þegar ýtan ók yfir hana. Dauði Rachel Corrie gerði hana að eins konar tákni meðal palestínskra aðgerðasinna um hörku Ísraela gagnvart friðsælum mótmælum fyrir botni Miðjarðarhafs. Stjórnvöld í Ísrael segja að það hafi verið á ábyrgð Rachel Corrie sjálfrar að hafa staðið í vegi fyrir jarðýtunni. Hún hafi sett sjálfa sig í mikla hættu með ólöglegum aðgerðum. Þúsundir annarra mótmælenda hafi sett sig í svipuð spor með vanhugsuðum aðgerðum. Foreldrar Rachel krefjast aðeins eins Bandaríkjadals í skaðabætur frá Ísrael en fara þó fram á að sá kostnaður sem lögsókn þeirra hefur fylgt verði greiddur. Hjónin hafa eytt yfir 200 þúsund dölum í að fljúga með vitni til Ísrael, vera sjálf viðstödd réttarhöld og í þýðingu rúmlega þúsund blaðsíðna af prentuðum dómsskjölum. Corrie-hjónin segja mál sitt ekki gefa rétta mynd af því hversu erfitt sé að reka mál fyrir dómstólum í Ísrael. Dómar yfir hermönnum séu mjög sjaldgæfir.- bþh
Fréttir Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro Sjá meira