Lög gegn barnaníði hert til muna 19. maí 2012 13:00 Bannað að skoða barnaklám Hingað til hefur einungis verið bannað að framleiða það eiga og dreifa því. Fréttablaðið/E.ÓL
Bannað verður með lögum að framleiða klámfengið efni þar sem leikendur herma eftir barni, þó þeir hafi náð átján ára aldri. Einnig verður bannað að mæla sér mót við barn undir 15 ára aldri í kynferðislegum tilgangi, hvort sem það er á Netinu eða utan þess. Þá skal einnig fest í lög að ólöglegt verði að skoða barnaklám, en hingað til hafa lögin einungis náð utan um framleiðslu, vörslu og dreifingu á efninu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í frumvarpi refsiréttarnefndar innanríkisráðuneytisins um breytingar á hegningarlögum. Var það lagt fram í því skyni að innleiða ákvæði samnings Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun. Allsherjar- og menntamálanefnd afgreiddi frumvarpið í vikunni, þó með þeirri breytingu að ekki verði einungis ólöglegt að mæla sér mót við barn á Netinu, eins og refsiréttarnefnd lagði til, heldur einnig utan þess. Innanríkisráðherra er hvattur til að leggja frumvarpið fram í byrjun þings í haust. Umsagnir bárust til Alþingis frá Barnaheillum, Barnaverndarstofu, Kvenréttindafélagi Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands, ríkissaksóknara og umboðsmanni barna.- sv
Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira