Skaupsstjórinn stígur á svið 22. mars 2012 15:30 Gunnar í hlutverki sínu sem litháíski hesturinn í sýningunni Ævintýri Múnkhásens. „
Þetta er mikið ævintýri," segir leikstjórinn Gunnar Björn Guðmundsson, sem hefur leikstýrt áramótaskaupinu á RÚV síðustu ár. Gaflaraleikhúsið frumsýnir í dag klukkan 18 Ævintýri Múnkhásens, eftir Sævar Sigurgeirsson. Leikarar á borð við Gunnar Helgason, Ágústu Evu Erlendsdóttur og Magnús Guðmundsson fara með hlutverk í sýningunni og leikstjórinn Gunnar, sem leikstýrir reyndar ekki þessu verki, stígur einnig á svið. Spurður hvort hann hafi gert Ágústu Skúladóttur, leikstjóra verksins, erfitt fyrir með stöðugum aðfinnslum segir Gunnar svo ekki vera. „Ég skil hvað leikstjórinn þarf að gera til að gera verkið frábært. Leikarinn verður að spila með," segir hann. Hann tekur þó fram að það sé bæði erfitt og gaman að stíga á svið á ný, en það gerði hann síðast fyrir sjö árum. „Þetta er rosalega góður skóli. Maður er alltaf að læra. Nú verð ég að gera það sem ég er búinn að vera að segja öðrum að gera. Þá öðlast ég skilning á sársauka þeirra," segir hann og rekur upp hrossahlátur. Ævintýri Múnkhásens virðist höfða til allra aldurshópa. Forsýningar hafa staðið yfir og Gunnar segir að börn allt niður í tveggja ára gömul hafi skemmt sér konunglega ásamt unglingum og gamalmennum. „Þetta er fjölskyldusýning," segir hann. Miðasala á sýninguna fer fram á vefsíðunni Midi.is. - afb
Lífið Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira