Bloomberg fær ekki gögn frá ECB um blekkingar Grikkja 30. nóvember 2012 06:29
Evrópski seðlabankinn (ECB) þarf ekki að gera opinber skjöl sem sýna hvernig stjórnvöldum í Grikklandi tókst að blekkja Evrópusambandið um stöðu ríkisfjármála sinna fyrir hrunið 2008. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins í máli Bloomberg fréttaveitunnar gegn ECB en Bloomberg lagði fram beiðni til bankans árið 2010 um að fá aðgang að þessum skjölum. Seðlabankinn neitaði strax að verða við beiðni Bloomberg sem kærði þá ákvörðun til dómstólsins. Í umfjöllun um málið í börsen segir að grískum stjórnvöldum hafi tekist í áratug að blekkja aðrar Evrópuþjóðir um bágborna stöðu ríkisfjármála sinna með því að notast við afleiður sem voru tryggðar með ríkiseignum. Þegar ECB skrúfaði fyrir fjármagnsstrauminn til Grikklands árið 2008 hófst gríska kreppan um leið og endaði með því að landið er nú algerlega háð neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Þessar blekkingar Grikkja höfðu einnig þær afleiðingar að verulega var hert á reglum um upplýsingagjöf um ríkisfjármál til evrópsku hagstofunnar Eurostat.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira