Þorsteinn Joð og gestir hans í Meistaradeildarmörkunum fóru yfir leik Juventus og Chelsea í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Juventus hafði betur, 3-0, en Chelsea er fyrir vikið nánast úr leik í Meistaradeildinni þetta árið.
Chelsea þarf að vinna Nordsjælland á heimavelli í lokaumferðinni og treysta á að Juventus tapi á sama tíma fyrir Shakhtar Donetsk - sem er þegar komið áfram.
Ef Chelsea kemst ekki áfram í 16-liða úrslitin yrði það í fyrsta sinn sem ríkjandi Evrópumeistari kæmist ekki áfram úr riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Smelltu á hlekkinn hér fyrir ofan til að sjá umfjöllunina.
Fótbolti