Norðurá fer í útboð 16. nóvember 2012 10:45 Norðurá er til leigu frá sumrinu 2014. Mynd / Trausti
Veiðiréttareigendur við Norðurá ætla að setja ána í formlegt útboð. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni. Eins og kunnugt er ákvaðu veiðiréttareigendur og Stangaveiðifélag Reykjavíkur á dögunum að binda endi á 66 ára óslitið samstarf sitt í jkjölfar þess að ekki náðist samkomulag um lækkun áður ákveðinnar árleigu fyrir næsta sumar. Óformlegar þreifingar um framhaldið hafa staðið síðan við tvo aðila en nú hafa veiðiréttareigendurnir sem sagt ákveðið að fara í útboð. Skessuhorn hefur eftir Birnu G Konráðsdóttur, formanni Veiðifélags Norðurár, að stjórn félagsins hafi verið falið á miðvikidag að vinna að útboðsgögnum fyrir ána og kynna þau eins fljótt og verða megi. gar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Miðá í Dölum til SVFR Veiði Erlendir veiðimenn uggandi yfir líklegu eldgosi Veiði Laxar að stökkva við ósa Leirvogsár og Elliðaánna Veiði Fish Partner með veiðiferðir erlendis Veiði Loksins líf í Straumunum Veiði Veiðin gengur vel í Elliðaánum Veiði Frábær opnun í Jöklu Veiði 79 laxa lokadagur í Eystri Rangá Veiði 11 og 12 punda laxar í opnun Hvannadalsár Veiði