Webber stal ráspól af Vettel í Kóreu Birgir Þór Harðarson skrifar 13. október 2012 06:17 Webber ók hraðast í tímatökunum í Kóreu. nordicphotos/afp
Það var Mark Webber á Red Bull-bíl sem ók hraðast um Yeongam brautina í Kóreu í síðustu lotu tímatöku fyrir kappaksturinn þar. Hann stal ráspólnum af liðsfélaga sínum, heimsmeistaranum Sebastian Vettel, sem hafði verði lang fljótastur fyrstu tveimur lotum tímatökunnar. Vettel ræsir annar í kappakstrinum á morgun og því eru báðir Red Bull-bílarnir fremstir. Lewis Hamilton mun ræsa þriðji í McLaren-bílnum á undan Fernando Alonso á Ferrari. Það verður áhugavert að sjá hversu miklu af keppnishraða sínum Red Bull-liðið hefur fórnað til að hafa svona mikla yfirburði í tímatökunum. Ekki er víst að yfirburðirnir séu jafn miklir. Alonso verður í dauðafæri til að bæta stöðu sína í brautinni í ræsingunni. Hann þarf helst að fá fleiri stig en Vettel vilji hann halda efsta sætinu í heimsmeistarakeppninni. Kimi Raikkönen mun ræsa fimmti í Lotus-bílnum sínum. Hann hafði verið í bölvðum vandræðum með uppstllingu bílsins á æfingum og var enn kvartandi undan undirstýringu eftir aðra lotu tímatökunnar. Felipe Massa á Ferrari skilur Kimi frá liðsfélaga sínum, Romain Grosjean, sem ræsir í sjöunda sæti. Nico Hulkenberg ók eina Force India-bílnum í lokalotunni. Hann náði áttunda besta tíma og var fljótari en Nico Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes sem ræsa í níunda og tíunda sæti. Jenson Button komst nokkuð óvænt ekki upp úr annari lotu tímatökunnar. Hann ræsir ellefti en er örugglega feginn að vera á eftir Romain Grosjean í ræsingunni. Grosjean hefur níu sinnum valdið slysi í fyrstu beygju og yfirleitt tekið einhverja með sér. Þá ber að nefna Sauber-bílana og þá Sergio Perez og Kamui Kobayashi. Þeir áttu í örlitlum vandræðum og ræsa í tólfta og þrettánda sæti. Rásröðin í kappakstrinum á morgun Nr.ÖkumaðurLið / VélTímiBil1Mark WebberRed Bull/Renault1'37.242-2Sebastian VettelRed Bull/Renault1'37.3160.0743Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'37.4690.2274Fernando AlonsoFerrari1'37.5340.2925Kimi RäikkönenLotus/Renault1'37.6250.3836Felipe MassaFerrari1'37.8840.6427Romain GrosjeanLotus/Renault1'37.9340.6928Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'38.2661.0249Nico RosbergMercedes1'38.3611.11910M.SchumacherMercedes1'38.5131.27111Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'38.4411.19912Sergio PérezSauber/Ferrari1'38.4601.21813Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'38.5941.35214Paul Di RestaForce India/Mercedes1'38.6431.40115Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'38.7251.48316Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'39.0841.84217Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'39.3402.09818Bruno SennaWilliams/Renault1'39.4432.20119Vitaly PetrovCaterham/Renault1'40.2072.96520H.KovalainenCaterham/Renault1'40.3333.09121Timo GlockMarussia/Cosworth1'41.3714.12922Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'42.8815.63923N.KarthikeyanHRT/Cosworth--24Charles PicMarussia/Cosworth1'41.3174.075
Formúla Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Fótbolti Fleiri fréttir Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira