Vettel kom í mark á undan liðsfélaga sínum Mark Webber. Þetta var þriðji sigur Vettels í röð en hann náði forystunni strax á fyrsta hring. Vettel var ekki ógnað eftir það.
Fernando Alonso skilaði Ferrari-bíl sínum heim í þriðja sætið. Það dugði hins vegar ekki til að halda forystu í stigabaráttunni sem var fyrir mótið fjögur stig. Alonso er nú sex stigum á eftir heimsmeistaranum unga.
Liðsfélagi Alonso hjá Ferrari, Felipe Massa, varð fjórði á undan Kimi Raikkönen hjá Lotus. Massa var á fljúgandi siglingu í keppninni og sótti á Alonso. Hann fékk þó skilaboð um að halda sinni stöðu og eyðileggja ekki fyrir Alonso. Romain Grosjean, einnig hjá Lotus, varð sjöundi og olli ekki usla í ræsingunni eins og margir höfðu veðjað á.
McLaren-bílarnir voru í mesta basli. Jenson Button féll úr leik strax í byrjun og Lewis Hamilton lauk kappakstrinum í tíunda sæti og sótti síðasta stigið í boði. Margir höfðu trúað að McLaren-liðið myndi veita Red Bull hörðustu samkeppnina um heimsmeistratitilinn en það hefur ekki orðið raunin.
Nico Hulkenberg hjá Force India ók frábærlega og skilaði bílnum heim í sjötta sæti. Toro Rosso-ökumennirnir, Jean-Eric Vergne og Daniel Ricciardo, voru einnig í miklu stuði og kláruðu í áttunda og níunda sæti.
Næst verður keppt á Indlandi eftir tvær vikur.
Úrslit mótsins í Kóreu
Nr. | Ökumaður | Bíll / Vél | Hringir | Tími | Bið |
1 | Sebastian Vettel | Red Bull/Renault | 55 | 1:36'28.651 | |
2 | Mark Webber | Red Bull/Renault | 55 | 1:36'36.882 | 8.231 |
3 | Fernando Alonso | Ferrari | 55 | 1:36'42.595 | 13.944 |
4 | Felipe Massa | Ferrari | 55 | 1:36'48.819 | 20.168 |
5 | Kimi Räikkönen | Lotus/Renault | 55 | 1:37'05.390 | 36.739 |
6 | Nico Hülkenberg | Force India/Mercedes | 55 | 1:37'13.952 | 45.301 |
7 | Romain Grosjean | Lotus/Renault | 55 | 1:37'23.463 | 54.812 |
8 | Jean-Eric Vergne | Toro Rosso/Ferrari | 55 | 1:37'38.240 | 1'09.589 |
9 | Daniel Ricciardo | Toro Rosso/Ferrari | 55 | 1:37'40.438 | 1'11.787 |
10 | Lewis Hamilton | McLaren/Mercedes | 55 | 1:37'48.343 | 1'19.692 |
11 | Sergio Pérez | Sauber/Ferrari | 55 | 1:37'48.713 | 1'20.062 |
12 | Paul Di Resta | Force India/Mercedes | 55 | 1:37'53.099 | 1'24.448 |
13 | M.Schumacher | Mercedes | 55 | 1:37'57.892 | 1'29.241 |
14 | Pastor Maldonado | Williams/Renault | 55 | 1:38'03.575 | 1'34.924 |
15 | Bruno Senna | Williams/Renault | 55 | 1:38'05.553 | 1'36.902 |
16 | Vitaly Petrov | Caterham/Renault | 54 | 1:37'31.417 | 1 Lap |
17 | H.Kovalainen | Caterham/Renault | 54 | 1:37'42.137 | 1 Lap |
18 | Timo Glock | Marussia/Cosworth | 54 | 1:37'52.750 | 1 Lap |
19 | Charles Pic | Marussia/Cosworth | 53 | 1:36'31.365 | 2 Laps |
20 | N.Karthikeyan | HRT/Cosworth | 53 | 1:37'51.910 | 2 Laps |
Pedro de la Rosa | HRT/Cosworth | 16 | 29'49.468 | ||
Kamui Kobayashi | Sauber/Ferrari | 16 | 30'47.332 | ||
Nico Rosberg | Mercedes | 1 | 1'58.108 | ||
Jenson Button | McLaren/Mercedes | 0 |