Virði Google lækkaði um átta prósent 18. október 2012 22:35 Hlutabréf Google voru í frjálsu falli eftir að uppgjörið var kynnt í dag en þau lækkuðu um heil átta prósent. MYND/AFP
Markaðsvirði Google dróst saman um átta prósent eftir að uppgjör fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung var kunngjört í gær, en hagnaður fyrirtækisins dróst saman um 20 prósent miðað við sama tímabil árið á undan. Þá ýtti ótímabær birting á rekstrartölum fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung undir áhyggjur fjárfesta af hagnaðarsamdrættinum, að því er fram kemur á vef Wall Street Journal. Hagnaður Google á þriðja ársfjórðungi nam 2,18 milljörðum dala, eða sem nemur tæplega 270 milljörðum króna, en á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 2,7 milljörðum dala, eða sem nemur 332 milljörðum króna. Það sem af er degi (19. október) hefur gengi Google lækkað um ríflega þrjú prósent, og er ástæðan rakin til slakari rekstrartalna á þriðja ársfjórðungi en búist hafði verið við, að því er segir á vef Wall Street Journal. Sjá má umfjöllun Wall Street Journal, um gengi Google í dag og í gær, hér.Leiðrétting: Staðreyndavillur voru í fyrri útgáfu þessarar fréttir, er vörðuðu meðal annars hagnaðartölur og markaðsvirði Google, sem hafa nú verið leiðréttar. Beðist er afsökunar á mistökunum.
Mest lesið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent