Hagstæðara fyrir fyrirtækin að leigja bílana en að eiga. 17. september 2012 12:24 Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráinsdóttir eru viðskiptastjórar hjá Avis og er fyrirtækjaþjónusta sérgrein þeirra. mynd/stefán
Avis bílaleiga hefur um margra ára skeið rekið öfluga fyrirtækjaþjónustu. Viðskiptavinir bílaleigunnar geta treyst því að Avis er ávallt með gott úrval af nýjum bílum og vinnur stöðugt að því að gera bókun á bílaleigubílum eins aðgengilega og einfalda og kostur er. Um leið og fyrirtæki hefur gert samning við Avis fær það sérstakan viðskiptastjóra sem sér um að öll bílamál hjá viðkomandi fyrirtæki séu í lagi. Þessi þjónusta er sveigjanleg og áreiðanleg lausn sem leysir þarfir viðkomandi fyrirtækis. Þannig finnum við alltaf bestu lausnina fyrir fyrirtækið hverju sinni. Það eru margir ótvíræðir kostir við að leigja bíla frekar en að eiga þá. Það fylgir enginn viðhaldskostnaður leigðum bílum né bifreiðagjöld. Ekki þarf að hafa áhyggjur af dekkjaskiptum, tryggingum eða endursöluáhættu bílsins. Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráinsdóttir eru viðskiptastjórar hjá Avis og er fyrirtækjaþjónusta sérgrein þeirra. Þau segja þarfir fyrirtækja vera eins misjafnar og þau eru mörg. "Hingað koma stór og smá fyrirtæki með ólíkar þarfir þegar kemur að stærðum og gerðum bíla og eins að lengd leigutímans svo eitthvað sé nefnt. Við kappkostum að finna bestu lausnina fyrir hvert og eitt fyrirtæki bæði hratt og vel." Viðskiptastjórar Avis hafa mikla reynslu og auðvelda fyrirtækjum að sjá bestu kostina. "Það er misjafnt hvort um er að ræða tímabundið söluátak, árstíðabundin störf eða stöðuga keyrslu svo eitthvað sé nefnt. Vetrarleigan eða skólabílarnir þar sem þú leigir bílinn bara yfir vetrarmánuðina hefur einnig verið sérstaklega vinsæl hjá fyrirtækjunum fyrir komandi vetur." Forgangsþjónusta Avis er þægilegur kostur fyrir þá sem ferðast mikið. Sem meðlimur forgangsþjónustu Avis þarftu einungis að framvísa ökuskírteininu þínu, sækja bíllyklana og aka af stað. Viðskiptavinurinn sleppur því við allar skráningar og biðraðir. Avis býður upp á leigustöðvar á öllum helstu þéttbýliskjörnum á Íslandi. Það er alltaf verið að skoða möguleikana á því að fjölga leigustöðvunum um landið enn frekar. Viðskiptavinir Avis geta því auðveldlega fengið bíl á einum stað og skilað honum á öðrum. Bílafloti Avis er stór og nær yfir allan skalann, allt frá litlum umhverfisvænum smábílum upp í stóra jeppa, smárútur og sendiferðabíla. Til eru fjórar stærðir af sendiferðabílum sem henta fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum að leigja. Leigu tíminn er mjög sveigjanlegur en það er hægt að leigja þessa bíla frá fjórum klukkustundum allt upp í 36 mánuði. Í þjónustuveri okkar starfar frábært og reynslumikið fólk sem sér um að bóka bílinn hvort sem fólk vantar bíl innanlands eða erlendis. Nánari upplýsingar má finna á vef Avis, Avis.is og í þjónustuveri Avis í síma 591 4000.
Mest lesið Ballið bráðum búið á Brewdog Viðskipti innlent Krabbamein á vinnustöðum: „Ekki segja; þú veist að ég er til staðar“ Atvinnulíf Undirbýr kveðjustund í Straumsvík Viðskipti innlent Færa Jarðböðin í nýtt hús og nýjan búning Viðskipti innlent Allt bendir til kólnunar og nefndin mun mildari Viðskipti innlent Heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Eðalfiskur í Borgarnesi skiptir um nafn Viðskipti innlent Höggið á ríkissjóð allt að fimm milljarðar Viðskipti innlent Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ Samstarf Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira