Fyrsta Kindle-lesbrettið fór á markað í nóvember árið 2007. Notendur virðast hafa tekið tækninni með opnum örmum og hafa vinsældir litlu tölvunnar aukist jafnt og þétt síðustu misseri.
En þessi gríðarlega aukning sem orðið hefur á niðurhali á rafbókum Amazon má rekja til Prime viðskiptaþjónustunnar sem fyrirtækið kynnti fyrir nokkrum árum. Með þjónustunni geta viðskiptavinir Amazon fengið bækur að láni, gjaldlaus og án skiladags.

Á síðustu árum hefur Amazon gengið í gegnum endurskipulagningu á nær öllum starfsháttum sínum. Innleiðing Kindle lesbrettisins og Kindle Fire spjaldtölvunnar hefur kallað aukna fjárfestingar, til dæmis í gagnaverum sem fyrirtækið rekur nú víða um heim.
Apple er helsti samkeppnisaðili Amazon. Miðað við uppgjör Apple fyrir síðasta ársfjórðung hefur fyrirtækið nú um 70 prósent markaðshlutdeild á spjaldtölvumarkaðinum. Hlutdeild nýliðans, Amazon, stendur í 4.2 prósentum.