Shaneka hetja Eyjakvenna gegn Blikum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2012 15:48 Mynd/Ernir
Shaneka Gordon skoraði bæði mörk ÍBV í 2-1 útisigri á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Sigurmarkið kom í viðbótartíma en Blikar höfðu ráðið gangi mála lengst af í leiknum. Blikar byrjuðu af krafti en það voru engu að síður Eyjakonur sem komust yfir í sinni fyrstu sókn. Shaneka Gordon fékk þá langa sendingu inn fyrir vörnina og lagði boltann með vinstri fæti í fjærhornið. Þrátt fyrir að vera betri aðiilinn lengst af tókst Blikum ekki að jafna metin fyrr en stundarfjórðungur var liðinn af síðari hálfleik. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir fékk þá stungusendingu og kláraði færið virkilega vel. Breiðablik sótti án afláts eftir markið en þegar allt stefndi í jafntefli fékk Shaneka Gordon boltann á vítateig Blika hægra megin. Hún lék á varnarmann Blika áður en hún hamraði knöttinn í netið með vinstri fæti. Eyjakonur fögnuðu að vonum mikið enda um langþráð þrjú stig að ræða eftir tvö töp í deildinni í röð. Þór/KA, sem gerði jafntefli gegn Val í kvöld, er í toppsætinu með 29 stig. Breiðablik hefur 23 stig í öðru sæti og ÍBV í því fjórða með 22 stig. Stjarnan hefur einnig 23 stig en lakari markatölu en Blikar. Leikur liðsins gegn KR stendur yfir.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Fleiri fréttir Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild McLagan framlengir við Framara Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 2-1 | Heimakonur unnu Reykjavíkurslaginn Galdur orðinn leikmaður KR Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? „Sáum á dómurunum í restina að þeir höfðu eitthvað á samviskunni“ „Ákvað bara að láta vaða“ „Það var góð barátta í okkur og mikil liðsheild“ Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-6 | Ekkert fær Blika stöðvað Uppgjörið: Þór/KA - Valur 1-2 | Mikilvægur sigur gestanna Uppgjör: Stjarnan - Tindastóll 3-0 | Hoppa upp í efri hlutann eftir sannfærandi sigur Fengið nokkur skilaboð eftir skipti frá Val til KR Sjáðu mörkin úr Bestu: Nú er hinn Pedersen bróðirinn farinn að skora líka „Ég var í smá sjokki“ Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Sjá meira