Topplið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk í titilbaráttunni. Sænski framherjinn Rebecca Johnson hefur gengið til liðs við félagið.
Johnson er 23 ára og lék síðast með Dalsjöfors í sænsku deildinni. Félagið, sem lék í suðurhluta sænsku 1. deildarinnar, varð gjaldþrota á dögunum og þurftu leikmenn því að leita sér að nýju liði.
Johnson hefur ekki fengið leikheimild og leikur því ekki með norðankonum gegn Val í dag. Hún er þó mætt á Hlíðarenda og er á leikskýrslu norðankvenna. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Johsnon leikur því fyrst leik sinn fimmtudaginn 9. ágúst þegar liðið tekur á móti FH.
