Björn Kristinn: Stressið í síðari hálfleik varð of mikið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. júlí 2012 21:41 Björn Kristinn stýrði áður meðal annars kvennaliði Fylkis. „
Við skoruðum vissulega í blálokin en áttum níu dauðafæri í fyrri hálfleik, fjórum sinnum einn á móti markverði. Þær áttu eina sókn í fyrri hálfleik, komust einu sinni fram yfir miðju," sagði Björn Kristinn Björnsson þjálfari Selfyssinga að loknu 1-1 jafntefli liðsins gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Bæði lið þurftu sárlega á stigunum þremur að halda í fallbaráttu deildarinnar. KR-ingar komust yfir snemma í síðari hálfleik en Selfyssingar jöfnuðu í viðbótartíma. Björn Kristinn segir það hafa kostað liðið að hafa ekki tekist að skora í fyrri hálfleik þegar yfirburðir liðsins voru miklir. „Stressið varð of mikið í síðari hálfleik. Það er hættan, eins og við fórum yfir í hálfleik, að ef þú sækir og sækir án þess að skora þá færðu eitt í bakið," sagði Björn Kristinn og sagðist gráta tvö töpuð stig mjög. Bilið á milli Selfoss og KR í neðstu tveimur sætunum minnkaði ekki. Selfoss hefur fimm stiga forskot á KR og í ljósi þess var mikilvægt að Selfoss tapaði ekki leiknum. „Það er smá sárabót en ekki meira en það," sagði Björn Kristinn sem færði markaskorarann Katrínu Ýr Friðgeirsdóttur úr bakverði í stöðu framherja eftir að KR-ingar komust yfir. „Ég tók Katrínu Ýr úr bakverði og setti í framlínuna. Ég setti framherja á vænginn, setti miðvörð á miðjuna. Ég gerði þessar breytingar kannski of seint. Þetta var mér að kenna," sagði Björn Kristinn.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Katrín Ýr tryggði Selfyssingum stig KR-ingar voru sekúndum frá því að landa sínum fyrsta sigri í Pepsi-deild kvenna er liðið fékk Selfoss í heimsókn í kvöld. Katrín Ýr Friðgeirsdóttir jafnaði metin fyrir gestina í viðbótartíma. 18. júlí 2012 21:34 Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Sjá meira
Katrín Ýr tryggði Selfyssingum stig KR-ingar voru sekúndum frá því að landa sínum fyrsta sigri í Pepsi-deild kvenna er liðið fékk Selfoss í heimsókn í kvöld. Katrín Ýr Friðgeirsdóttir jafnaði metin fyrir gestina í viðbótartíma. 18. júlí 2012 21:34