Stjörnukonur misstu niður 2-0 forskot í Eyjum - Danka með tvö fyrir ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2012 17:30 Danka Podovac. Mynd/Anton
ÍBV og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í toppslag í 8. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld en bæði lið hafa verið að ná góðum úrslitum í undanförnum leikjum sínum. Stjarnan komst í 2-0 í fyrri hálfleik en ÍBV-liðinu tókst að tryggja sér eitt stig í þeim síðari. Danka Podovac var hetja Eyjaliðsins en hún skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum. Anna Björk Kristjánsdóttir skoraði fyrra mark Stjörnunnar með þrumuskoti eftir hornspyrnu Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur á 36. mínútu og Harpa Þorsteinsdóttir bætti við öðru marki á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir sofandahátt í Eyjavörninni. ÍBV-liðið byrjaði seinni hálfleikinn vel og Danka Podovac minnkaði muninn úr vítaspyrnu sem Shaneka Gordon fékk á 54.mínútu. Shaneka Gordon fékk dauðafæri skömmu síðar en Eyjakonur náðu ekki fylgja þessu eftir og Stjörnukonur virtust ætla að taka öll þrjú stigin með sér í land. Danka Podovac var hinsvegar ekki búin að segja sitt síðasta og tókst að jafna metin á 84. mínútu með góðu skoti utarlega út teignum eftir sendingu fyrirliðans Elísu Viðarsdóttur. Bæði lið reyndu að sækja sigurinn í lokin en mörkin urðu ekki fleiri og liðin sættust á 2-2 jafntefli.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira