Gaf gömul hjól og býður fjölskyldunni til útlanda Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 20. júní 2012 21:30 Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir gaf tvö gömul hjól. mynd/Barnaheill
Alls söfnuðust um 500 reiðhjól í hjólasöfnun Barnaheilla — Save the Children á Íslandi og WOW Cyclothons. Ung stúlka var vinningshafi söfnunarinnar en hún gaf tvö hjól og getur nú boðið fjölskyldu sinni til útlanda. Tekið var við reiðhjólunum á endurvinnslustöðum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um land allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjólasöfnunin er hluti af átaksverkefni í tengslum við áheitasöfnun WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni en hún er fyrsta alþjóðlega hjólreiðakeppnin sem haldin hefur verið á Íslandi.Sigrún Elísa með gömlu hjólin tvö.mynd/barnaheillTil mikils var að vinna fyrir þá sem voru reiðubúnir að gefa gömlu reiðhjólin sín. Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir gaf tvö gömul hjól og í gær, við upphaf hjólreiðakeppninnar, fékk hún afhent verðlaunin — flugmiða frá WOW Air. Upphaflega áttu verðlaunin að vera fjórir flugmiðar en þar sem fjölskyldumeðlimir Sigrúnar Elísu eru fimm var ákveðið að bæta einum miða við. Þrettán hjólalið taka þátt í WOW Cyclothon en þau hjól 1.332 kílómetra. Seinnipartinn í dag voru fremstu lið að nálgast Egilsstaði en talið er að þau muni skila sér til Reykjavíkur annað kvöld. Öll áheit á liðin renna óskipt til áheitaverkefnis Barnaheilla — Save the Children á Íslandi „Hreyfing og líkamlegt heilbrigði barna." Hægt er að heita á liðin hér.
Wow Cyclothon Mest lesið Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Innlent Fleiri fréttir „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Sjá meira