Helga Magnúsdóttir var í dag kjörinn í framkvæmdastjórn evrópska handknattleikssambandsins, EHF. Tíu voru í kjöri en aðeins þrjú sæti í boði.
Helga náði kjöri sem og Daninn Per Mertelsen og Makedóninn Predrag Boskovic.
Glæsilegur árangur hjá Helgu sem sat áður í mótanefnd EHF.
Hún er þess utan fyrsta konan sem nær kjöri í framkvæmdastjórnina og því um ansi merkilegan atburð að ræða.
Helga fyrsta konan sem er kjörin í framkvæmdastjórn EHF
