Manchester United og Barcelona mætast í ágúst Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júní 2012 17:30 Mynd/AP
Manchester United og Barcelona hafa samið um að mætast í æfingaleik í Gautaborg 8. ágúst næstkomandi en þetta verður annað sumarið í röð þar sem þessi stórlið mætast á undirbúningstímabilinu. Manchester United vann 2-1 sigur á Barcelona í Bandaríkjunum í lok júlí í fyrra en Michael Owen skoraði sigurmark liðsins eftir að Nani hafði komið United í 1-0. Thiago jafnaði fyrir Barca. Manchester United verður komið lengra í undirbúningi sínum fyrir tímabilið enda byrjar enska úrvalsdeildin fyrr en sú spænska. Fyrsti leikur United í deildinni er á móti Everton 18. eða 19. ágúst. Manchester United byrjar undirbúningstímabilið á því að fara til Suður-Afríku og Kína í seinni hluta júlí en mætir síðan Vålerenga á Ullevaal leikvanginum í Osló þremur dögum áður en kemur að leiknum við Börsunga. Allir leikmenn United ættu að vera klárir í leikinn á móti Barcelona fyrir utan Ryan Giggs sem verður upptekin með Ólympíuliði Breta á leikunum í London. Barcelona verður duglegt á undirbúningstímabilinu en þetta er fyrsta leiktíð liðsins undir stjórn Tito Vilanova. Liðið mætir meðal annars Hamburger SV og Paris Saint-Germain áður en kemur að leiknum við Manchester.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Fleiri fréttir FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Sjá meira