Mark Webber verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Mónakó í dag. Webber, sem ekur hjá Red Bull, hefur enn ekki hrósað sigri í þeim fimm mótum sem búin eru á tímabilinu.
Ástralinn vann síðast sigur í Brasilíukappakstrinum á síðasta ári. Hann hafnaði í fjórða sæti í fystu fjórum keppnum tímabilsins en þurfti að sætta sig við það ellefta í síðustu keppni á Spáni.
Webber ók á næstbesta tímanum í tímatökunum en hraðast ók Þjóðverjinn Michael Schumacher hjá Mercedes. Schumacher var hins vegar refsað vegna atviks í Spánarkappakstrinum og ræsir sjötti.
Webber hefur mátt sætta sig við að lifa í skugga Þjóðverjans Sebastian Vettel sem ekur einnig fyrir Red Bull. Vettel hefur staðið uppi sem sigurvegari í keppni ökuþóra undanfarin tvöt tímabil. Hann ræsir hins vegar níundi í dag.
Vettel er efstur ásamt Fernando Alonso hjá Ferrari í keppni ökuþóra á yfirstandandi tímabili með 61 stig að loknum fimm keppnum. Webber er fimmti með 48 stig.
Röð keppenda fyrir ræsinguna í Mónakó má sjá hér að neðan. Keppnin hefst klukkan 12 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
01 Mark Webber
02 Nico Rosberg
03 Lewis Hamilton
04 Romain Grosjean
05 Fernando Alonso
06 Michael Schumacher *
07 Felipe Massa
08 Kimi Raikkonen
09 Sebastian Vettel
10 Nico Hulkenberg
11 Kamui Kobayashi
12 Jenson Button
13 Bruno Senna
14 Paul di Resta
15 Daniel Ricciardo
16 Jean-Eric Vergne
17 Heikki Kovalainen
18 Vitaly Petrov
19 Timo Glock
20 Pedro de la Rosa
21 Charles Pic
22 Narain Karthikeyan
23 Pastor Maldonado **
24 Sergio Perez ***
*Refsing - aftur um fimm sæti vegna áreksturs á Spáni
**Tvöföld refsing - aftur um fimmtán sæti vegna áreksturs og bilunar í búnaði
***Refsing - aftur um fimm sæti venga bilunar í búnaði
Webber í leit að sínum fyrsta sigri
