Íslandsmeistarar Stjörnunnar byrja tímabilið ekki vel því meistararnir urðu að sætta sig við tap, 3-1, gegn Þór/KA fyrir norðan.
Leikurinn byrjaði reyndar ágætlega fyrir Stjörnuna því þær komust yfir með marki Ásgerðar Stefaníu Baldursdóttur úr vítaspyrnu á 11. mínútu.
Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði leikinn fyrir Þór/KA fyrir hlé og kom þeim svo yfir átta mínútum fyrir leikslok.
Það var svo Sandra María Jessen sem gulltryggði sigur Norðanstúlkna. Frábær byrjun hjá þeim.
Íslandsmeistararnir lágu fyrir norðan

Mest lesið





„Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“
Fótbolti


Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti

Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn

