Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur 4. maí 2012 06:37
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið síðasta sólarhringinn og er nú komið á svipaðar slóðir og skömmu eftir áramótin. Tunnan af Brent olíunni er komin niður í 116 dollara og hefur verð hennar ekki verið lægra síðan í febrúar í ár. Verðið hefur fallið um 2% síðan í gær en nefna má að um tíma í mars var verðið á tunnunni komið yfir 128 dollara. Miðað við það hámark er lækkunin nærri 10%. Mikill þrýstingur skapaðist á olíuverð á heimsmörkuðum eftir hefðbundinn fund bankastjórnar evrópska seðlabankans síðdegis í gær. Þar sagði Mario Draghi seðlabankastjóri að stýrivaxtahækkun hefði ekki verið til umræðu, bankinn myndi ekki dæla meiru af lánsfé út á markaðinn í bili og að óvissa ríkti um útlitið í efnahagsmálum evru svæðisins. Um leið og þessi orð Draghi fóru í loftið byrjaði olíuverðið að falla mjög hratt því markaðurinn býst nú við minni eftirspurn eftir olíu í Evrópu þar sem efnahagur álfunnar er bersýnilega ekki að rétta mikið úr kútnum á næstunni.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira