Auðugur Dani er annar stærsti landeigandi á Bretlandseyjum 7. maí 2012 11:17
Danskur auðmaður er orðinn næststærsti jarðeigandinn á Bretlandseyjum. Hann á orðið meiri jarðir þar en Karl Bretaprins. Um er að ræða Anders Holch Povlsen einn eiganda og forstjóra Bestseller tískuhússins í Danmörku. Hann hefur keypt lönd og bújarðir í Skotlandi í miklum mæli á síðustu árum. Þessar jarðir og lönd eru samtals yfir 500 ferkílómetrar að stærð. Í umfjöllun um málið í blaðinu Daily Express segir að Povlsen eigi orðið meira af jörðum á Bretlandseyjum en bæði Karl Bretaprins og hertoginn af Westminster. Þessar jarðir Povlsen eru einkum í Sutherland í Skotlandi. Það fylgir söginni að Povlsen hyggst kaupa um 200 ferkílómetra í viðbót af jörðum og landi á þessum slóðum. Hann segir að ástæðan fyrir þessum jarðarkaupum sínum sé m.a. að Skotland sé eitt af fáum svæðum utan hins ótrygga evru-svæðis í Evrópu sem hægt er að fjárfesta í. Povlsen býr í Danmörku með eiginkonu sinni og þremur dætrum. Fjölskylda hans er með þeim efnaðri í landinu en hjá Bestseller vinna nú um 12.000 manns.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira