Hönnun í hávegum höfð hjá Epal 21. mars 2012 10:45 Myndir/Epal
HönnunarMars fer nú fram í fjórða skipti og áhugafólk um hönnun bíður fullt eftirvæntingar eftir að sjá hvað íslenskir hönnuðir hafa nýtt fram að færa. EPAL tekur að þessu sinni virkan þátt í HönnunarMars með því að sýna verk hátt í tuttugu hönnuða í versluninni á Skeifunni 6 dagana 22.-25. mars 2012 EPAL hefur frá upphafi lagt metnað sinn í að styðja við bakið á og kynna íslenska hönnuði og verk þeirra bæði hérlendis sem erlendis. Ein leiðin til þess að það megi takast er að taka þátt í HönnunarMars með sýningu á verkum hönnuðanna. HönnunarMars í EPAL í ár má lýsa með því að segja að þar beri fyrir augu góða blöndu af verkum þekktra sem og nýrra upprennandi hönnuða sem eru að stíga sín fyrstu skref á hönnunarbrautinni. Verkin á sýningunni í EPAL eru ótrúlega fjölbreytt, allt frá fullmótuðum hlutum sem tilbúnir eru til sölu til hugmynda á frumstigi. Þarna getur að líta húsgögn, leikföng, ljós, teppi og nytjahluti sem eru jafnt til heimilisprýði og daglegrar notkunar. En með því að hafa á heimilinu íslenska hönnun prýðum við það ekki aðeins heldur stuðlum að því að þroska hönnunarvitund landsmanna. Opnunartíminn í EPAL á meðan HönnunarMars stendur yfir er frá kl. 10.00-18.00 fimmtudag og föstudag, 22. og 23.mars, frá 11.00-16.00 laugardaginn 24 mars og frá 12.00-16.00 sunnudaginn 25. mars. Opnunarhátíð verður hins vegar miðvikudaginn 21. mars frá kl. 17.00 -20.00. Þátttakendur í HönnunarMars í EPAL eru: Katrín Ólína Pétursdóttir / Borð 3 stk. og smáhlutir. Sigríður Heimisdóttir vöruhönnuður / Skápur og kollar. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir & Halla Björk Kristjánsdóttir / Glös, kertastjakar og smáhlutir. Haf by Hafsteinn Júlíusson / Næringardiskurinn. Tulipop / Matarstell og smáhlutir. Erla Sólveig Óskarsdóttir / Sófi. Helga Sigurbjarnadóttir / Kollur og smáhlutir. Chuck Mack / Matur og Vín vörulína. Hrafnkell Birgisson / Blómavasar. Jón Björnsson / Ostabakki. Mottuverksmiðajn elivogar – Sigríður Ólafsdóttir & Sigrún Lára Shanko / Teppi. Inga Elín / Ljós. Demo – handverk – Dagný Elsa Einarsdóttir & Magnús Ólafsson / Ljós. FærID / Skemil, bakki, púðar og herðatréið Willow Hring eftir Hring – Steinunn Vala / skartgripir Hekla Björk – Lóa... Snagar Marún Design – Marta Pálsdóttir & Sigrún Agnes Rúnarsdóttir / Staflhringir, samfellur og bolir. Guðrún Valdimarsdóttir vöruhönnuður / Kertastjakar og leikfangakubbar. Margrét Ólafsdóttir innanhúsarkitekt / Púsluhús. Anna Þórunn / kertastjakar og vasi Sveinbjörg Hallgrímsdóttir / Thermo bollar, birkibakkar & textíl Norðaustan 10
HönnunarMars Mest lesið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana Tónlist Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Lífið Fleiri fréttir Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira