Afsagnarbréf hefur kostað Goldman Sachs 250 milljarða 15. mars 2012 10:17
Opinbert afsagnarbréf starfsmanns hjá Goldman Sachs bankanum í Bandaríkjunum hefur kostað eigendur bankans um 250 milljarða króna á hlutabréfamarkaðinum á Wall Street. Starfsmaðurinn, Greg Smith, birti afsagnarbréf sitt í blaðinu New York Times. Þar ber hann Goldman Sachs ekki vel söguna. Segir hann bankann vera siðferðislega gjaldþrota og helsta keppikefli starfsmanna hans sé að féflétta viðskiptavini sína. Þá segir hann andrúmsloftið á vinnustað sínum hafa verið eitrað. Við lok markaða á Wall Street í nótt hafði gengi Goldman Sachs fallið um tæp 3,4% vegna bréfsins frá Smith og skapað þannig gengistap upp á um 250 milljarða króna hjá eigendum hlutafjár í bankanum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hraunað er yfir Goldman Sachs. Í vetur skrifaði blaðamaður stóra grein í Rolling Stone tímaritið þar sem bankinn var kallaður vampýru kolkrabbi sem legðist á allt þar sem blóðlykt væri að finna. Lloyd Blankfein bankastjóri Goldman Sachs hefur svarað Smith á heimasíðu bankans. Þar ber hann sakir Smiths af bankanum og segir starfsmennina gæta hagsmuna viðskiptavina sinna í hvívetna enda sé slíkt í þágu hagsmuna bankans.
Mest lesið Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent