Röng frétt olli því að heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp 2. mars 2012 07:04
Mikill taugatitringur er á olíumörkuðum heimsins. Röng frétt í arabískum fjölmiðlum olli því að heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp í gærkvöldi. Verðið á Brentolíunni hækkaði um 5% á nokkrum klukkutímum í gærkvöldi og fór yfir 128 dollara á tunnuna. Tunnan af bandarísku léttolíunni hækkaði einnig, en ekki eins mikið eða um 3% og fór um tíma yfir 110 dollara á tunnuna. Þetta er hæsta heimsmarkaðsverð á olíu síðan fyrir kreppuna árið 2008. Það sem olli þessum hækkunum voru fréttir í arabískum fjölmiðlum um að ráðist hefði verið á olíuleiðslu í Saudi Arabíu og hún sprengd í loft upp. Síðar kom í ljós að þessar fréttir voru rangar og gaf olíuverðið þá aðeins eftir að nýju. Í morgun kostaði tunnan af Brentolíunni þannig rúma 125 dollara. Sérfræðingar sem BBC ræddi við um málið segja að olíuverðið sé alltof hátt skráð í augnablikinu. Vorið er að koma í Bandaríkjunum og Evrópu og ætti það að draga úr eftirspurninni. Raunar er talið að tunnan af Brentolíunni gæti lækkað um 20 dollara ef ró kemst á í deilum Vesturveldanna við Íran.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Lífið samstarf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira