KR-konur upp í þriðja sætið | Fóru illa með Fjölni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2012 20:47 Margrét Kara Sturludóttir. Mynd/Stefán
KR-konur eru komnar upp í þriðja sæti Iceland Express deildar kvenna eftir sannfærandi 44 stiga sigur á Fjölni í kvöld, 86-42. KR fór upp fyrir Hauka en Haukakonur eiga leik inni á móti Val á morgun. KR-liðið lagði grunninn að sigrinum með frábærum öðrum leikhluta sem liðið vann 17-4 og náði í kjölfarið 17 stiga forystu í hálfleik, 36-19. KR gerði endanlega út um leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 22-10 og ná 29 stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann. Margrét Kara Sturludóttir lék vel með KR-liðinu og var með 24 stig og 12 fráköst en Sigrún Sjöfn Ámundadóttir bætti við 14 stigum og 13 fráköstum. Það var samt varnarleikur KR-liðsins sem á mesta hrósið skilið en Fjölniskonur náðu aðeins að nýta 23 prósent skota sinna í leiknum (15 af 65). KR-liðið hélt stigahæsta leikmanni deildarinnar, Brittney Jones, í aðeins 12 stigum en það er það minnsta sem hún hefur skorað í vetur. Jones hitti aðeins úr 4 af 18 skotum sínum. Hamar vann sinn leik í kvöld og því munar bara fjórum stigum á tveimur neðstu liðunum sem munu berjast um að sleppa við fall úr deildinni á lokasprettinum.KR-Fjölnir 86-42 (19-15, 17-4, 22-10, 28-13)KR: Margrét Kara Sturludóttir 24/12 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14/13 fráköst, Erica Prosser 13/6 fráköst/6 stoðsendingar, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 9, Hafrún Hálfdánardóttir 9/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 8/4 fráköst, Kristbjörg Pálsdóttir 3, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 2, Helga Hrund Friðriksdóttir 2/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 2/5 fráköst.Fjölnir: Brittney Jones 12/5 stolnir, Katina Mandylaris 10/13 fráköst, Birna Eiríksdóttir 9/6 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 7/5 fráköst, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 3, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 1.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira