Gegn hræsni og tepruskap 16. desember 2011 10:00 Hjálmar sveinsson Fékk handritið að endurminningum Þórðar Sigtryggssonar úr dánarbúi Elíasar Marar, sem skráði þær snemma á 7. árartugnum. Fréttablaðið/Stefán
Bókaforlagið Omdúrman hefur gefið Mennt er máttur, kafla úr endurminningum Þórðar Sigtryggsonar sem Elías Mar skráði fyrir hálfri öld og hefur fengið á sig goðsagnakenndan blæ. Mennt er máttur - Tilraunir með dramb og hroka nefnist ný bók, sem kemur út hjá forlaginu Omdúrman, byggð á gömlu handriti með sama nafni. Þar skráir Elías Mar endurminningar Þórðar Sigtryggssonar vinar síns og organista. Þórður var „hómósexúalisti“ á tímum sem farið var með samkynhneigð eins og mannsmorð. Í endurminningum sínum sleppir hann hins vegar fram af sér beislinu, bókin er stúfull af húmor, guðlasti, berorðum kynórum og heift út í íslenskt samfélag fyrir hræsni, hneysklsunargirni og tepruskap. Elías Mar hóf að skrifa endurminningar Þórðar 1961. Fjórum árum síðar var Þórður allur en Elías Mar gengur frá handriti 1972. Það lá óbætt hjá garði þar til 2007, þegar Elías andast, og ratar þá til Hjálmars Sveinssonar hjá Omdúrman, sem hafði skrifað um Elías og verk hans. „Mér barst þetta handrit úr dánarbúi Elíasar á sínum tíma,“ segir Hjálmar sem jafnframt skrifar eftirmála að verkinu,. „Það hafði fengið á sig goðsagnakenndan blæ í gegnum árin. Ég hafði sjálfur heyrt óljósar sögur um hvað stæði í þessu handriti, mikið guðlast og kynórar og að menn hafi lengi spáð í að gefa þetta út en enginn þorað. Ég fékk strax mikinn áhuga á að gefa þetta út hjá mínum forlagi og kom því loksins að núna.“ Þórður fæddist 1890, hlaut litla skólagöngu en var engu að síður mikill menntamaður og fagurkeri og talaði til dæmis fjögur tungumál. Hann framfleytti sér með orgelleik og bjó lengst af ævinni við kröpp kjör. Hjálmar telur fáa hafa vitað að Þórður hafi verið samkynhneigður á sínum tíma, enda fóru menn leynt með slíkt á þeim tíma. „En í ákveðnum kreðsum, ekki síst tengdum Unuhúsi, var hann svo að segja opinber „hómósexúalisti“ eins og það hét. í Unuhúsi komst hann í kynni við Halldór Laxness, sem heillaðist svo af honum að hann skrifaði upphaflega persónu organistans í Atómstöðinni með hann í huga. „Í Húsi skáldsins eftir Peter Hallberg kemur fram að í fyrstu drögum sögunnar var organistinn miklu grófari manngerð en í endanlegu gerðinni; stóryrtari og augljóslega „kynvilltur“. Hallberg nefnir Þórð hvergi á nafn en Elías var ekki í nokkrum vafa um að Þórður væri fyrirmyndin. En þegar Laxness er að skrifa bókina andast Erlendur í Unuhúsi. Halldór vill heiðra minningu vinar síns og ljær organistunum skýrari drætti frá Elendi svo hann verður þessi hálf kynlausi taósisti. Útgáfa handritsins er mikilvæg viðbót við sögu samkynhneigðra á Íslandi enda segist Hjálmar leggja á það áherslu að Þórði sé ekki hægt að ýta út í horn kynlegra kvista, eins og tilhneiging sé til. „Þetta handrit er algjörlega meðvituð yfirlýsing. Þarna er haldið á lofti mjög sterkri fagurfræði sem á sér hliðstæðu annars staðar. Ég vísa til dæmis í skrif Susan Sontag frá 1963, þar sem hún lýsir þeirri menningu sem lifir hjá þessum jaðarhópi; ást á óperum, kitsi, Oscar Wilde - í dag er það Júróvisjón og þvíumlíkt. Þetta er ekki eitthvað rugl út í bláinn heldur ákveðin stemning sem þessir hópar rækta. Þessi bók sýnir að þessi stemning var líka til hér á Íslandi á þessum tíma, en bara í mjög litlum kreðsum.“ Hjálmar er sannfærður um að Elías Mar hafi ætlað handritið til útgáfu í þeirri mynd sem hann gekk frá því. Handritið var til í örfáum fjölrituðum eintökum, meðal annars átti Halldór Laxness eitt og segir Hjálmar hann hafa lesið upp úr fyrir gesti til skemmtunar. Þá hafði Sigfús Daðason eintak undir höndum sem hann hafði hug á að gefa út fyrir um tuttugu árum en ekkert varð úr. „Ég hugsa að því hafi ekki aðeins ráðið þessar pornógrafísku lýsingar, heldur ræðst Þórður líka á nafngreinda menntamenn. En sé þessi bók lesin af sanngirni held ég að fólk sjái að það er ekki meint bókstaflega. Þórður er ekki mjög áreiðanlegur sögumaður; undirtitilinn, Tilraunir með dramb og hroka, bendir til að þetta sé líka írónía, Þórður er líka að hlæja að sjálfum sér. Síðast en ekki síst veit maður ekki að hve miklu leyti þetta er sköpunarverk Elíasar Marar. Og mér finnst það bara fínt.“ bergsteinn@frettabladid.is
Lífið Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Veikindafríi Páls Óskars lokið Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Chili Con Carne er hinn fullkomni haustréttur Matur Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Matargleði Evu: Dýrindis páskalamb Matur Fleiri fréttir Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“ Veikindafríi Páls Óskars lokið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Sunneva og Benedikt trúlofuð Tónlistarmyndband Addison Rae tekið upp á Íslandi Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Mælir með því að tala við gervigreind sem sálfræðing „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ „Leyfi lífinu bara að leiða mig“ Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Fanney og Teitur greina frá kyninu Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Drógu saman um 74 prósent í samgöngukostnað Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Ferðalög, heimsóknir eða huggulegheit heima framundan um páskana Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Sjá meira