Pólitíkusar heykjast á samkomulagi 13. desember 2011 04:45 mótmælt Kumi Naidoo, framkvæmdastjóri Greenpeace, reyndi ásamt fjölda annarra að brýna stjórnmálamenn til dáða í Durban. Ekki tókst að ná samkomulagi um töluleg markmið um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda.fréttablaðið/ap
Ekki tókst að ná lagalega bindandi samkomulagi allra þjóða um samdrátt í útblæstri gróðurhúsalofttegunda í Durban. Engu að síður skuldbundu ríki sig til að ná saman um samning sem tæki gildi 2020. Umhverfissinnar hafa áhyggjur af því að það verði of seint. Kýótó-bókunin rennur út á næsta ári. Þróuð ríki taka á sig lagalega bindandi skuldbindingu um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda eftir 2012. Þetta er niðurstaða loftslagsráðstefnunnar í Durban sem lauk um helgina. Ekki náðist samkomulag sem næði til allra þjóða og eru það nokkur vonbrigði. Ríkin sammæltust þó um að ná lagalega bindandi samningi sem nást skyldi 2015, en tæki ekki gildi fyrr en 2020. Sömu átakalínur voru á ráðstefnunni í Durban og hafa verið í þessum málaflokki síðustu ár. Evrópusambandið vill ganga lengst og minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda um 20 prósent miðað við árið 1990. Bandaríkin vilja miða við árið 2005, sem þýðir mun minni samdrátt. Stríðið stendur síðan á milli Bandaríkjanna og þróunarríkja, en þau fyrrnefndu vilja að eitt samkomulag gildi fyrir alla. Því hafa þróunarríkin mótmælt og bent á að iðnríkin hafi notið hagsældar iðnvæðingarinnar áratugum ef ekki öldum saman með tilheyrandi útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Kínverjar hafa til að mynda viljað miða bókhaldið við 1. janúar 1900 og telja sig eiga nokkuð inni í útblæstri miðað við vestrænar þjóðir. Kyoto fellur úr gildiSamkomulag um samdrátt náðist í Kýótó árið 1997 og er kennt við þá borg. Samkvæmt því tóku nær 40 þróuð ríki á sig tölulegar skuldbindingar um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008 til 2012. Bókunin rennur því út á næsta ári. Reynt hefur verið að ná saman um nýjan samning síðustu fimm árin en ekkert hefur gengið, ekki síst vegna fyrrnefnds ágreinings. Japan, Rússland og Kanada hafa sagt sig frá bókuninni. Á móti hefur Evrópusambandið, Ísland, Noregur, Sviss, Ástralía, Nýja-Sjáland og fleiri ríki lýst sig reiðubúin til að taka á sig nýjar skuldbindingar innan bókunarinnar. Ríkin innan Kýótó-bókunarinnar eru ábyrg fyrir 16 prósentum af losun gróðurhúsalofttegunda, en upphaflega markmiðið var að bókunin næði til meira en helmings losunar. Endurheimt votlendisNiðurstaðan í Durban gerir ráð fyrir að á næsta ári verði gengið frá fastri tölu fyrir einstök ríki um hve mikið skuli dregið úr útblæstri. Þá verður stefnt að því að framlög þróaðra ríkja til þróunarlanda á sviði loftslagsmála verði 100 milljarðar Bandaríkjadala árlega árið 2020. Ísland hefur lýst sig reiðubúið til að taka þátt í 2. skuldbindingartímabili Kýótó, en landið verður ekki með sérstaka tölulega skuldbindingu heldur undir sameiginlegum hatti flestra Evrópuríkja. Ísland verður hluti af evrópsku viðskiptakerfi með losunarheimildir eftir áramótin 2012 til 2013 og mun það ná til meira en 40 prósenta losunar hér á landi, einkum frá stóriðju. Samkomulag náðist um aðgerðir til endurheimtar votlendis, til að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda. Sú tillaga kemur upphaflega frá Íslendingum og var efni hennar að mestu samþykkt í fyrra. Fjármagn vantarGuðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, segir íslenska stjórnmálamenn þurfa að gera það upp við sig hvort þeir ætli að bíða með aðgerðir í næstum áratug eða að Ísland gangi á undan með góðu fordæmi. Því miður virðist fáir tilbúnir í þá vegferð. „Hér virðist árangur stjórnmálanna t.d. enn metinn út frá einkaneyslu og sölutölum bílaumboðanna. Þá hefur ríkisstjórnin ekki staðið við samkomulag sem það undirritaði í september um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með framlagi upp á einn milljarð króna. Nú er ljóst að þetta framlag verður einungis 350 milljónir, þrátt fyrir stórauknar tekjur ríkissjóðs af mengunarsköttum. Þetta eru mikil vonbrigði í ljósi þess að það er einmitt á sviði samgangna sem við eigum mesta möguleika á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.“ Guðmundur segir bagalegt að ekkert sé fjallað um mengunarskatt í lögum um skattlagningu á olíuvinnslu þrátt fyrir að ábendingar um slíkan skatt hafi komið fram í drögum að umhverfisskýrslu um verkefnið.
Fréttir Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Erlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Erlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Fleiri fréttir Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Sjá meira