
„Núna hef ég smá tíma fyrir sjálfan mig til að skoða landið,“ er meðal þess fyrsta sem Morgan Spurlock segir þegar blaðamaður hittir hann á áttundu hæð Nordica Hotel við Suðurlandsbraut. Hann heimsótti Ísland fyrir sjö árum þegar hann sýndi Super Size Me, myndina sem kom honum á kortið. Núna ætlar Spurlock að borða fisk, fara í Bláa lónið og skoða Gullfoss og Geysi. „Ég ætla ekki að láta eina steik inn fyrir mínar varir, fiskurinn hérna er frábær.“ Og þar með er Íslandskynningu viðtalsins lokið.
Tjaldið fellur

Hringdi í 600 fyrirtækiThe Greatest Movie Ever Sold er eingöngu fjármögnuð af fyrirtækjum og varð Spurlock því að ganga á milli fyrirtækja og selja sjálfan sig. Hann viðurkennir að það ferðalag hafi reynst honum erfiðara en hann átti von á og sest á sálina. „Það kom mér á óvart hversu erfiðlega þetta gekk. Ég hringdi í 600 fyrirtæki en það voru bara fimmtán sem vildu vera með.“ Spurlock reyndi meira að segja við McDonald‘s. „Ég hringdi margoft og skildi eftir mörg skilaboð. Ég útskýrði fyrir þeim að þetta yrði allt öðruvísi núna en þeir svöruðu mér ekki. Það gerðu hins vegar Burger King, KFC og Taco Bell. Og þau vildu alls ekki vera með.“
Kvikmyndagerðin tekur sinn tollSpurlock hefur ekki verið feiminn við að nota fjölskylduna í myndunum sínum. Í Super Size Me stóð eiginkonan hans, Alexandra Jamieson, þétt við bakið á honum og í Where in the World Is Osama Bin Laden? lék ólétta hennar stórt hlutverk. Og þetta virðist hafa tekið sinn toll því þau eru nú skilin eftir að hafa verið gift í sex ár. „Ég er einstæður pabbi og það er mjög erfitt þegar maður er í þessum bransa. Þetta ferðalag sem ég er í núna stendur yfir í þrjár vikur. Ég reyni að vera í sem mestu sambandi við strákinn minn gegnum Skype en það er erfitt að geta ekki verið með honum í svona langan tíma.“ Spurlock bendir jafnframt á þá staðreynd að hann er ekki kvikmyndastjarna sem þénar tuttugu milljónir dala á hverja mynd. „Ég verð því alltaf að vera að og fá hugmyndir.“
Comic-Con næstSpurlock er þegar farinn að leggja drög að næstu mynd, sem fjallar um hátíðina Comic-Con í San Diego, eina áhrifamestu ráðstefnu í heimi. Þangað koma 150 þúsund manns og ráða því hvaða myndir, tölvuleikir og myndasögublöð verða vinsæl næst. Þetta verður óhefðbundin Spurlock-mynd því hann verður ekki í forgrunni sjálfur. „Þeir sem þola mig ekki ættu að geta farið á þessa mynd því röddin mín heyrist ekki einu sinni. En ég er mjög spenntur fyrir henni.“