Eins og að deila við dómarann 31. mars 2011 21:00 Í ólgusjó Óvíst er hversu alvarlegar afleiðingar það hefur að hafna nýjum Icesave-samningi. Ljóst er þó talið að ríkissjóður gæti lent í vandræðum með endurfjármögnun lána sem myndi torvelda afléttingu gjaldeyrishafta.Fréttablaðið/Valli
Að mótmæla viðbrögðum lánshæfismatsfyrirtækja við höfnun Icesave-samkomulags er eins og að deila við dómarann. Alþjóðlegir stórfjárfestar reiða sig á mat fyrirtækjanna. Geti ríkið ekki endurfjármagnað sig á alþjóðlegum mörkuðum er fyrirséð að erfitt verði að afnema gjaldeyrishöft. Nei yrði alvarlegt áfall fyrir orðspor Íslands, segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði. Óvarlegt virðist að áætla að viðbrögð við neitun í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave eftir rúma viku verði góð þegar horft er til efnahagsumhverfis landsins og samskipta við önnur lönd. Raunar er það svo að lánshæfismatsfyrirtækið Moody's hefur lýst því yfir að líkur séu á að lánshæfi Íslands verði lækkað í svokallaðan ruslflokk fari svo að nýjum samningi verði hafnað. Áður hafði fyrirtækið talið líklegt að samþykkt Alþingis á frumvarpi um nýja samninga gæti orðið til þess að fyrirtækið myndi hækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Vísað hefur verið til þess í umfjöllun greiningardeilda bankanna hér að svo virðist sem matsfyrirtækin vilji bíða og sjá hvernig Icesave ríður af. Þannig var haft eftir Eileen Zhang, sérfræðingi hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Standard&Poors, að samþykkt Icesave-samninganna myndi gefa þeim skýrari sýn og eyða einum áhættuþætti. Lánveitingar eru tengdar IcesaveFrekari vísbendingar um viðbrögð á lánamarkaði má svo finna í því hvernig Norðurlöndin gerðu lausn Icesave-deilunnar að skilyrði í lánveitingum til Íslands, en um tíma var fjármögnun efnahagsáætlunar landsins í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki trygg vegna þessa skilyrðis og tafðist hún nokkuð þess vegna. Norrænu lánin gengu hins vegar í gegn þegar ljóst þótti að nást myndu samningar. Þá má nefna að lán Norræna fjárfestingarbankans (NIB) til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar er háð því skilyrði að önnur fjármögnun fáist að smíði virkjunarinnar, en Evrópski fjárfestingarbankinn hefur ítrekað frestað því að taka ákvörðun um lán til virkjunarinnar á meðan Icesave deilan er óleyst. Fari hins vegar svo að lánshæfiseinkunn Íslands hjá alþjóðlegu matsfyrirtækjunum lækki eftir að samningi yrði hafnað þá kynnu afleiðingarnar að verða víðtækar. Seðlabankinn hefur meðal annars sagt að nei í kosningunni muni seinka aðgerðum á seinni stigum í afléttingu gjaldeyrishafta. Í samtölum við sérfræðinga greiningardeilda bankanna kemur fram að erlendu matsfyrirtækin virðist telja að Ísland sitji uppi með Icesave-kostnaðinn hvernig sem fer í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Erlendir fagfjárfestar eru síðan bundnir af lánareglum sem gera þeim ómögulegt að fjárfesta í skuldabréfum undir einhverri ákveðinni lánshæfiseinkunn. Því sé það svo að þótt lánshæfismatsfyrirtækin hafi gert alvarleg mistök og beri að hluta ábyrgð á alþjóðlegu fjármálakreppunni, þá sé ekki annað kerfi við lýði til að meta lánshæfi ríkja og stórfyrirtækja. Að deila við lánshæfismatsfyrirtækin er sagt vera eins og að deila við dómarann. Stjórnmálaóstöðugleiki skaðarBaldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði og formaður stjórnar Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands, segir ljóst að verði Icesave-samningnum hafnað þá haldi ekki samningar ríkisstjórnarinnar með samþykki Alþingis. „Það yrði alvarlegt áfall fyrir orðspor Íslands og hefur ekkert með þessa ríkisstjórn að gera," segir hann, en Baldur er jafnframt varaþingmaður Samfylkingarinnar. Hann veltir fyrir sér hvernig erlend stjórnvöld eigi að geta treyst samningum við ríkisstjórn Íslands ef forsetinn gengur ítrekað gegn vilja hennar og Alþingis. „Ég held að þetta hafi veruleg áhrif á traust á íslensk stjórnmál, efnahagslíf og fyrirtæki. Menn eru ekki vanir því í hinum vestræna heimi að ríkisstjórnir hlaupist undan ábyrgð og samningum bara þegar hentar þeim. Menn geta verið andvígir samningum, neitað að skrifa undir þá og fara eftir þeim. En að gerðir séu samningar við ríkisstjórnir sem síðan geta ekki framfylgt þeim er dálítið öðruvísi." Baldur gerir hins vegar ekki ráð fyrir að það hafi mikil áhrif á umsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu þótt samningurinn verði felldur. "Málið fer þá fyrir EFTA -dómstólinn og meðan á þeim málaferlum stendur sé ég ekki fyrir mér að þetta hafi áhrif á samningaviðræður Íslands við Evrópu," segir hann, en telur erfiðara að spá fyrir um stöðuna að fenginni niðurstöðu hjá dómnum. Baldur lýsir því hins vegar svo að hér sé komin upp stjórnarskrárkrísa með ákvörðunum forseta um að vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu með þessum hætti. „Eftir þessa ákvörðun forsetans þá átta menn sig ekki á stjórnskipan Íslands. Og það er alltaf erfitt þegar erlendir aðilar, sem við þurfum að eiga í nánum samskiptum við, upplifa að hér sé stjórnmálaóstöðugleiki." Þó svo að þessi stjórnskipulega óvissa verði áfram til staðar þótt samningurinn verði staðfestur segir Baldur að hún ágerist verði samningi hafnað. „Því þá er forsetinn að stöðva málið endanlega og búinn að koma í veg fyrir að íslensk stjórnvöld leysi málið með samningi og hefur með ákvörðun sinni komið málinu í dómsstólsleið."
Fréttir Icesave Tengdar fréttir Samskiptin batna ekki með nei-i Mat Lees C. Buchheit, formanns íslensku samninganefndarinnar, er að ómældur hliðarkostnaður geti verið í því falinn að hafa Icesave-deiluna óleysta yfir höfði þjóðarinnar. Er þá ekki litið til áhættunnar af því að málið gæti tapast "með skelfilegum afleiðingum“ að hans mati. 31. mars 2011 05:45 Nóg komið af áhættusækni „Mín skoðun er að það verði svo sem engin ragnarök þótt Icesave verði hafnað eins og sumir vilja halda fram,“ segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. 31. mars 2011 05:00 Áhrif Icesave ofmetin Tómas Ingi Olrich, fyrrum þingmaður, ráðherra og sendiherra, segir of mikið gert úr skaðlegum áhrifum þess að hafa Icesave-deiluna óleysta. 31. mars 2011 06:00 Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Erlent Fleiri fréttir Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Sjá meira
Samskiptin batna ekki með nei-i Mat Lees C. Buchheit, formanns íslensku samninganefndarinnar, er að ómældur hliðarkostnaður geti verið í því falinn að hafa Icesave-deiluna óleysta yfir höfði þjóðarinnar. Er þá ekki litið til áhættunnar af því að málið gæti tapast "með skelfilegum afleiðingum“ að hans mati. 31. mars 2011 05:45
Nóg komið af áhættusækni „Mín skoðun er að það verði svo sem engin ragnarök þótt Icesave verði hafnað eins og sumir vilja halda fram,“ segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. 31. mars 2011 05:00
Áhrif Icesave ofmetin Tómas Ingi Olrich, fyrrum þingmaður, ráðherra og sendiherra, segir of mikið gert úr skaðlegum áhrifum þess að hafa Icesave-deiluna óleysta. 31. mars 2011 06:00